Kristján Karl í 3. sæti í Íslandsmótinu í höggleik

Kristján Karl í 3. sæti í Íslandsmótinu í höggleik
Íslandsmótið í höggleik fór fram á Korpúlfsstöðum 6.-9. ágúst í flottri umgjörð. Alls tóku 16 kylfingar úr GM, 9 karlar og 7 konur. Töluverðar breytingar voru gerðar á vellinum fyrir mótið, bæði var hann lengdur og einnig gerður erfiðari með vallarmörkum og háum karga. Mikil rigning á fimmtudegi og föstudegi og rok á föstudegi og laugardegi gerði kylfingum erfitt fyrir.
Kristján Karl Guðjónsson lék best allra í GM en hann endaði í 3. sæti í karlaflokki.

Kristján Karl lék frábært golf og endaði á 3 höggum undir pari samtals. Hann lék mjög vel fyrir framan fjölda áhorfenda síðustu 2 keppnishringina og sjónvarpið en mótið var sýnt í beinni útsendingu á RÚV.

Björn Óskar Guðjónsson endaði jafn í 7. sæti eftir frábæra spilamennsku síðustu tvo keppnishringina og endaði á 2 höggum yfir pari samtals (73-77-67-69).
Kristófer Karl Karlsson var þriðji úr GM jafn í 24. sæti á +13 (75-76-70-76).
Í kvennaflokki var Heiða Rakel Rafnsdóttir best úr GM en hún endaði jöfn í 5. sæti á 15 höggum yfir pari (76-76-72-75).


Eva Kristinsdóttir var í 8. sæti á +18 (73-75-75-79). Auður Bergrún Snorradóttir var jöfn í 12. sæti á +26 og og Berglind Erla Baldursdóttir í 15. sæti á +27.
