Kristján Karl og Anna Dís sigruðu í GKG

Kristján Karl og Anna Dís sigruðu í GKG
Alls kepptu 40 iðkendur úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Golf14 og Unglingamótaröðinni í GKG sem fóru fram í Mýrinni og á Leirdalsvelli um helgina.
Aðstæður voru ágætar en töluverð rigning setti strik í reikninginn á föstudeginum.
Kristján Karl Guðjónsson hélt áfram að leika frábært golf í sumar og sigraði í flokki 17-18 ára drengja þegar hann lék hringina þrjá á 1 höggi undir pari (71-68-73). Sara María Guðmundsdóttir endaði í 2. sæti í flokki 15-16 ára stúlkna á +36 (88-83-78).
Golf14 mótið fór fram á Mýrinni en einnig á Leirdalsvelli í flokki 13-14 ára. Anna Dís Strange sigraði í flokki 13-14 ára stúlkna á Mýrinni en hún setti lokahöggið sitt beint í holu frá um 60 metra fjarlægð til að sigra í mótinu með einu höggi.
Elmar Þór Vilhjálmsson endaði í 2. sæti eftir spennandi bráðbana um sigurinn í flokki 10 ára og yngri drengja. Hann lék stórkostlegt golf á lokahringnum eða 38 höggum og var þetta var hans fyrsta golfmót á ferlinum.
Í flokki 13-14 ára stúlkna á Leirdalsvelli endaði Eiríka Malaika Stefánsdóttir í 4. sæti og Elva Rún Rafnsdóttir í 7. sæti. Emil Darri Birgisson og Ásgeir Páll Baldursson enduðu jafnir í 5. sæti í flokki 13-14 ára drengja á Leirdalsvelli.

Elmar Þór Vilhjálmsson GM, til vinstri

Anna Dís Strange GM, fyrir miðju
