Kristján með mótsmet - Sara María vann einnig

Dagur Ebenezersson • 26. maí 2026

Kristján með mótsmet - Sara María vann einnig

Kristján Karl Guðjónsson sigraði á fyrsta mótinu á Unglingamótaröðinni fór fram í Þorlákshöfn um helgina og setti mótsmet þegar hann lék á 21 höggi undir pari. Kristján lék á 65, 64 og 66 höggum og var tuttugu og þrjá undir pari fyrir lokaholuna. Kristján var jafn með flesta fugla allra kylfinga, eða nítján talsins. Þá var hann einnig með flesta erni (4) og enginn kylfingur tapaði færri höggum í mótinu. Kristján var með besta meðalskorið á par 3 (2.87), par 4 (3.71) og par 5 (4.2) holum Þorláksvallar. Magnaður árangur hjá okkar manni sem var ellefu höggum á undan næsta manni.

Grétar Logi Gunnarsson Bender lék einnig frábært golf og endaði í 4. sæti í flokki 17-18 ára pilta á einu höggi undir pari samtals (76 70 69).

Sara María Guðmundsdóttir sigraði í flokki 15-16 ára stúlkna með einu höggi en hún lék mjög vel eða á 9 höggum yfir pari samtals (77 76 72).

Þetta er virkilega góð byrjun hjá okkar efnilegustu unglingskylfingum og er næsta mót á mótaröðinn á Hlíðavelli um helgina.