Kristján og Ásgeir með sigra á Akureyri

Kristján og Ásgeir með sigra á Akureyri
Unglingamótaröð GSÍ og Golf14 léku á Jaðarsvelli á Akureyri um helgina samhliða því að Hvaleyrarbikarinn fór fram á Keili í Hafnarfirði.
Sól og blíða var á Akureyri þó blástur á lokadegi en skúrar settu strik í reikninginn í Keili.
Kristján Karl Guðjónsson sigraði á mótinu með mjög sannfærandi 7 högga mun. Hann lék hringina þrjá á -1 (68-75-69) og er þetta hans þriðji sigur á unglingamótaröðinni í sumar.
Í flokki 14 ára og yngri drengja var það Ásgeir Páll Baldursson (75-74) sem sigraði eftir bráðabana við Emil Darra Birgisson (73-76). Þeir léku báðir á +7 og voru 7 höggum á undan næsta manni.

Í flokki 14 ára og yngri stúlkna var Eiríka Malaika Stefánsdóttir í öðru sæti. Hún var á +20 (78-84), þremur höggum frá fyrsta sætinu.

Í Hvaleyrarbikarnum var Heiða Rakel Rafnsdóttir efst okkar kvenna í 4. sæti á +17 (77-78-78) og Ingi Þór Ólafsson efst karlamegin í 9. sæti á +4 (74-72-74). 6 höggum frá sigurvegara mótsins Axel Bóassyni.
