Kvennasveit GM eru Íslandsmeistarar golfklúbba

Kvennasveit GM eru Íslandsmeistarar golfklúbba
Íslandsmót golfklúbba fór fram 13. - 15. ágúst og léku konurnar á Hlíðavelli í GM og karlarnir á Strandarvelli á Hellu.
Kvennasveitin byrjaði á að vinna alla sína leiki í B-riðli á móti GSS, GOS og GR og kepptu svo í undarúrslitum við GKG sem endaði með sannfærandi sigri GM 4-1.
Í úrslitum við Golfklúbb Akureyrar var mikil spenna hófst leikurinn á fjórmenningi þar sem Kristín Sól Guðmundsdóttir og Arna Rún Kristjánsdóttir léku gegn Örnu Rún og Köru Líf Antonsdóttur. Lið GM komst fjórum holum yfir, en Akureyringar unnu sig til baka og jöfnuðu leikinn á 18. holu. Liðin héldu í bráðabana en enduðu með hálfan vinning hvort þegar ljóst var að GM hafi unnið leikinn.
Í tvímenningunum náði GM yfirhöndinni. Auður Bergrún Snorradóttir vann Björk Hannesdóttur 2 upp, Berglind Erla Baldursdóttir vann Bryndísi Evu Ágústsdóttur 3/2 og Heiða Rakel Rafnsdóttir vann Andreu Ýr Ásmundsdóttur, einnig 3/2.
Lilja Maren Jónsdóttir vann eina sigur GA í tvímenningunum þegar hún hafði betur gegn Birnu Rut Snorradóttur 4/3. Lokatölur úrslitaleiksins urðu 3.5 - 1.5 fyrir GM sem tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn. Þetta er fjórði sigur GM á síðustu fimm árunum í Íslandsmóti golfklúbba í kvennaflokki.

Frá vinstri: Birna Rut Snorradóttir, Kristín Sól Guðmundsdóttir, Heiða Rakel Rafnsdóttir, Arna Rún Kristjánsdóttir, Katrín Sól Davíðsdóttir, Berglind Erla Baldursdóttir, Sara María Guðmundsdóttir, Auður Bergrún Snorradóttir (fjarverandi á mynd), Katrín Dögg Hilmarsdóttir Liðsstjóri (fjarverandi á mynd), Karl Ómar Karlsson Þjálfari (fjarverandi á mynd)
Karlasveit GM léku við GA, GR og GBO og enduðu í 2. sæti í A-riðli og komust þeir því í undanúrslit sem var leikinn við GKG. Eftir hörkuleik á móti GKG var niðurstaðan 3-2 tap GM. Bronsleikurinn var við Keili og eftir mjög spennandi leik var niðurstaðan 1.5 - 3.5 tap GM þar sem 2 leikir fóru á 18. holu og 1 í bráðabana. Lokaniðurstaða karlasveitar GM í ár er því 4. sæti.

Frá vinstri: Dagur Ebenezersson (þjálfari), Þorsteinn Hallgrímsson (liðsstjóri), Kristófer Karl Karlsson, Andri Már Guðmundsson, Björn Óskar Guðjónsson, Kristján Þór Einarsson, Arnór Daði Rafnsson (varamaður), Andri Ágústsson (þjálfari), Kristján Karl Guðjónsson, Sverrir Haraldsson, Lárus Garðar Long, Eyþór Hrafnar Ketilsson, Ingi Þór Ólafson
