Leiknir hringir á völlum GM sumarið 2025

Ágúst Jensson • 11. mars 2026

Greining á leiknum hringjum á völlum GM árið 2025

Nú styttist heldur betur í vorið og þið vonandi verið dugleg að æfa í vetur. Ef þið eruð ennþá með kylfurnar ykkar upp í hillu þá er ekki seinna vænna að fara að taka þær niður og byrja að koma sér í stand fyrir vorið :)

Hér að neðan eru nokkrar skemmtilegar staðreyndir um spil á okkar völlum frá því í fyrra.

GM félaginn spilar að meðaltali 19,3 hringi á okkar völlum. Miðgildi leikinni hringja er 17.

Sá sem lék flesta hringi bókaði sig 213 sinnum í rástíma hjá okkur.

Konur í GM léku að meðaltali 18,6 hringi og karlar 19,6 hringi.

Á myndinni sem er hér fyrir ofan má sjá hvernig meðaltal leikinna hringja skiptist eftir aldri og forgjöf.