Lið GM endaði í 13. sæti á EM

Lið GM endaði í 13. sæti á EM

Kvennasveit GM endaði í 13. sæti á Evrópumóti golfklúbba sem lauk laugardaginn 3. október á Hamburger Falkenstein Golf Club í Þýskalandi. Alls tóku 19 golfklúbbar þátt í mótinu frá 16 mismunandi löndum. Arna Rún Kristjánsdóttir, Kristín Sól Guðmundsdóttir og Katrín Sól Davíðsdóttir skipuðu sveit GM.
Lið GM lék á 40 höggum yfir pari, en tvö bestu skor liðsins töldu á hverjum keppnisdegi.
Arna Rún lék best okkar kylfinga en hún endaði á tólf höggum yfir pari samtals. Hún lék hringi sína á 71, 78 og 76 höggum og endaði í 25. sæti einstaklingskeppninnar.
Kristín Sól lék á 79, 80 og 86 höggum, 32 höggum yfir pari og endaði í 43. sæti. Katrín Sól lék á 85, 83 og 82 höggum og endaði í 46. sæti.
GM vann sér þátttökurétt með sigri á Íslandsmóti golfklúbba á Hlíðavelli í ágúst. Þar hafði liðið betur gegn Golfklúbbi Akureyrar í úrslitaleik, 3.5-1.5, og fagnaði sínum fjórða Íslandsmeistaratitli á síðustu fimm árum.
