Lokadagur meistaramóts GM og lokahóf!

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 7. júlí 2023

Á morgun er lokadagur meistaramótsins okkar.

Veðurspáin er frábær og við hvetjum ykkur til þess að mæta snemma á völlinn og fylgjast með meistaraflokkunum okkar að koma inn.

Við verðum með glæsilegt hlaðborð að hætti Blik bistro og verður það opið frá kl. 18:30 til 21:30.

Hljómsveitin Króm mun svo leika fyrir dansi fram á rauða nótt.

Við minnum svo á "old fashion golf" þemað á morgun :)

Hlökkum til að sjá ykkur, þetta verður geggjað :)