GM félagi dagsins

Ágúst Jensson • 17. mars 2026

GM félagi dagsins er Siggeir Kolbeinsson

Forgjöf.

6,7


Hvenær varðstu félagi í GM?

Það var í kringum aldamótin, ´99 sennnilega. Ég, Siggi æskuvinur minn og þáverandi svili minn Sjonni Brink heitinn höfðum þá um vorið skráð okkur í Golfklúbb Setbergs en skiptum um lið á miðju sumri og færðum okkur upp í Mosó. Himmi Harðar mágur okkar Sjonna hafði nú eitthvað  með það að gera í að toga okkur yfir 😀Ég borgaði aldrei gjaldið í Setberginu, ég þarf sennilega að fara að græja það 😀


Afhverju byrjaðirðu að spila golf?

Ég var oft sem krakki að þvælast upp í Öndverðarnes með Sigga vini mínum og foreldrum hans, pabbi hans ( sem var múrari ) var eitthvað byrjaður að fikta í golfinu og við fengum að prufa líka, eftir gaggó fór ég að læra múrverk hjá honum og það gerðist oft á góðviðrisdögum að gamli þurfti að hendast austur í bústað til að “bjarga” einhverju, skrúfa einhverja skrúfu eða vökva blómin því það var svo mikill þurrkur 😀 Hann bað mig oftast að koma með því honum vantaði “aðstoð” við þetta allt, en auðvitað gerðum við ekkert annað en að fara beint út á völl 😀


Hvað er skemmtilegast við golfið?

Félagsskapurinn er dýrmætur og að berjast við allt frá 0-22 m á sec 🏌️


Hvernig hefur golfið gengið hjá þér?

Heilt yfir nokkuð vel, en stundum eru brekkur.


Hefurðu farið holu í höggi?

Já á 15. á Hlíðavelli.


Eftirminnileg atvik eða sögur af golfvellinum?

Í einni ferðinni austur í Öndverðarnes, ég hef sennilega verið ca 15 ára að þá erum við gamli á 2. holunni sem er par 3 110 metra lögn. Ég ríf upp 5 tré, miða mitt á milli Selfoss og Hveragerðis, slæsa langt út fyrir girðingu, boltinn kemur inn á fleygiferð, lendir í hólnum vinstra meginn við flötina,skoppar inn á grín og endar 5 cm frá holu, easy birdie 😀


Ég horfði á Tedda okkar fara holu í höggi á 18. í bændaglímunni um árið, það var sturlað móment að horfa á það með fullt af fólki á svölunum.


Albatrossinn með Valda var eitthvað annað líka. Gerðum það í bændaglímunni í fyrra.


Hvað er draumahollið þitt?

Það veit það sennilega enginn 😀en Tiger Woods deilir sama afmælisdegi og ég, 30. des, hann fær að fjóta með út af því. Atli sonur minn og Grant Horvat eru þarna líka og þurfa að keppa við okkur félagana.


Uppáhaldsvöllur?

Mér þykir alltaf vænt um fyrri 9 í Öndverðarnesinu, því þar byrjaði þetta, En Hlíðavöllur er minn völlur, Fincan á Spáni er þarna líka.


Hlíðavöllur eða Bakkakot?

Hlíðavöllur, en Bakkakot er frábær líka og verður alltaf betri og betri.


Besti kylfingurinn sem þú hefur spilað með?

Ég hef spilað með mörgum góðum, bræðrunum Kristófer og Tedda, Stjána og fleirum, en ætli Baddi minn standi ekki upp úr, því þegar hann slær þá veistu ekkert hvað er að fara gerast, hann veit það ekki einu sinni sjálfur en það eru alltaf einhverjir töfrar 😀


Spilaru golf í golfhermum yfir vetrarmánuðina?

Já ég reyni að vera duglegur, en mætti gera meira.


Spilarðu alltaf golf með sömu vinunum eða ertu dugleg/ur að skrá þig í holl þar sem þú þekkir fáa?

Ég hóp sem kallar sig Bara Fuglar og spila töluvert með þeim, en ég er ófeiminn að skrá mig í holl með hverjum sem er.


Ertu dugleg/ur að taka þátt í starfinu í GM? Ef svo er, hvað finnst þér skemmtilegast?

Ég hef verið duglegur, var formaður mótanefndar í mörg ár, sit í stjórn klúbbsins og reyni að vera með í meistaramóti, Palla Open og Bændaglímunni.


Er eitthvað hjá okkur í GM sem þeir finnst mega betur fara?

Ódýrari bjór fyrir nokkra sem ég þekki 🤣


Og að lokum, hvernig fer um þig í GM?

Mjög vel, mér þykir vænt um GM og við erum með topp starfsfólk sem sér um að við geturm spilað golf


Svo biðjum við þig um að tilnefna næsta kylfing vikunnar 😊



Ætli Baddi vinur minn þurfi ekki að fá að svara fyrir sig 😀