GM félagi dagsins

Ágúst Jensson • 25. mars 2026

GM félagi dagsins er hún Katla Sigurbjörnsdóttir

Forgjöf. 

19,3

 

Hvenær varstu félagi í GM?

Þegar stórt er spurt. Líklega fyrst i kringum 1991/2 þá 11/12 ára í Golfklúbbnum Kili. Man vel eftir því að fara á æfingar uppí Álafoss að slá innanhús í net i skemmunni sem var eitt það skemmtilegasta sem maður gerði. Svo tók unglingaveikin við og ég kom ekki aftur fyrr en liklega 2003. Við systur mættum svo galvaskar með dæturnar i vagni og nýttum lúrana þeirra vel.

Hef svo tekið góð ár inná milli í hléum.

 

Afhverju byrjaðirðu að spila golf? 

Arnar bróðir minn var smitaður snemma af þessari skæðu bakteríu og ég greinilega var útsett fyrir henni heima fyrir þar sem sóttkví þekktist ekki þá.

 

Hvað er skemmtilegast við golfið?

Svalirnar á Blik

 

Hvernig hefur golfið gengið hjá þér?

Svipað og þegar eg var í unglingavinnunni um árið. Þegar búið var að reita allann arfann, þá var honum helt aftur i beðið og maður átti að taka hann upp aftur, svo sem lítill árangur miðað við ástundun.

 

 

Hefurðu farið holu í höggi?

Já alveg nokkrum sinnum, en aldrei vakandi samt.

 

 Eftirminnileg atvik eða sögur af golfvellinum?

 Úff hvað getur maður sagt. Þau eru svooo mörg og misskemmtilegar minningar. Hvað kemst mikið fyrir á internetinu ?

En til dæmis árið 2020 keypti ég mer nýtt golfsett sem er ekki frásögu færandi en kylfurnar komu ekki allar í einu og beið ég mjög lengi eftir blessaða SandWedginum. Átti svo bókaðan hring þegar ég fæ óvænt símtal að kylfan sé mætt. Ég hendist og sæki kylfuna og sting henni beint i settið alsæl. Svo auðvitað var það skrifað i skýin að ég lendi i uppáhalds bunkernum mínum á fyrstu... tek SW úr pokanum og ríf af henni plastið.... skokka niður stíginn með kylfuna i hendinni og hugsa bara Váá hvað er fyndinn ballans á þessari kylfu.... Leit svo á hana og stend þá með örvhenta kylfu ! ! Kallaði fram gott hláturskast i hollinu og þetta moment gleymist seint. Rétta kylfan kom svo mánuði seinna og ég fékk að halda örvhentu kylfunni enda sérsmíðuð fyrir dverg.

 

Hvað er draumahollið þitt?

Ég er fyrst og síðast golfari til að hafa gaman og elska að spila með allskonar fólki svo öll holl eru i raun draumaholl.

 

Uppáhaldsvöllur?

Klárlega Skálavöllur í Vopnafirði. Hæðótt lands­lagið, í sumum tilfellum skáskorið getur verið ögrandi viður­eignar fyrir leik­menn og þrátt fyrir smæð skortir ekki fjöl­breytnina

 

Hlíðavöllur eða Bakkakot?

Hlíðavöllur

 

Besti kylfingurinn sem þú hefur spilað með?  

Ég hef verið mjög heppin og spilað með mörgum góðum Kylfingum en þeim hefur engum tekist að kenna mér eitthvað sem hefur hjálpað mér. En ætli Harpa systir mín sé ekki bara besti kylfingurinn.... óþolandi stabíll spilari sem vinnur með stutta sveiflu aftur og stutta fram og halda sér á braut og það virðist virka of vel.

 

Spilaru golf í golfhermum yfir vetrarmánuðina?

Já nokkur skipti yfir veturinn mætti vera duglegri.

 

 Spilarðu alltaf golf með sömu vinunum eða ertu dugleg/ur að skrá þig í holl þar sem þú þekkir fáa?

Spila alltaf vikulega með Félagi Rangeygðra sem er besti golfhópurinn.

En spila lika mikið með dætrunum og eiginmanninum sem kemur sér reyndar alltaf í einhver bölvuð vandræði sökum getuleysis. .!.


Ertu dugleg/ur að taka þátt í starfinu í GM? Ef svo er, hvað finnst þér skemmtilegast?

Ójá alltaf Viking deildin þar sem liðið mitt Kempurnar hefur bæði fagnað silfri og bronsi en hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið en við komum klárlega sterk inn aftur erum i endurhæfingu.  Bændagliman alltaf ómissandi sem og Meistaramótið, stundum verið með i Titleist holukeppninni.

Palla open er eitthvað sem ég á eftir að bæta við i árlega safnið.

 

Er eitthvað hjá okkur í GM sem þer finnst mega betur fara?

Já holurnar bara allt of þröngar og vantar öll vikmörk.

Svo vantar klárlega boltarennuna aftur 🙂

 

Og að lokum, hvernig fer um þig í GM?

 Bara líður alltaf eins og ég sé heima hjá mér enda langflestir vinir og stórfjölskyldan þar og andinn i klúbbnum uppá 10,5

 

Svo biðjum við þig um að tilnefna næsta kylfing vikunnar 😊

Ætli ég skori ekki bara á frænda minn hann Núma ( Heiðar Núma Hrafnsson)