Páll Líndal hlýtur hvatningarverðlaun UMSK

Ágúst Jensson • 27. mars 2026

Páll Líndal heiðraður á héraðsþingi UMSK.

102. héraðsþing UMSK (Ungmennasamband Kjalarnesþings) fór fram í Hlégarði í gær og þar var okkar eini sanni Palli Líndal heiðraður fyrir sitt framlag í gegnum Pallaopen og hlaut hvatningarverðlaun sambandsins.

Um þau segir,  „Hvatningarverðlaun UMSK getur hlotið aðildarfélag, deild innan aðildarfélags eða einstaklingur innan aðildarfélags UMSK fyrir eftirtektarverð og framsækin verkefni sem skara fram úr eða fyrir óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins“.


Eins og flestir GM félagar vita þá er Pallaopen okkar stærsta opna golfmót ár hvert og er farið að skipa stóran sess í okkar starfi. Í umsögn UMSK við afhendingu hvatningarverðlaunanna sagði, "Páll vinnur alveg ótrúlegt starf þegar að kemur að þessu móti. Hluti af því er að hann gengur reglulega um golfvelli klúbbsins og týnir golfbolta sem GM selur svo í sinni golfbúð yfir sumartímann, hefur það orðið til þess að fleiri kylfingar í GM eru farnir að gera það líka og er staðan þannig núna að allir notaðir golfboltar sem seldir eru yfir sumarið kemur frá þeim og þeir skipta þúsundum. 


Það er mikil vinna sem fer í þetta mót hjá Páli og á hann svo sannarlega skilið að hljóta hvatningarverðlaun UMSK að þessu sinni. Þessi mót hafa á undanförnum árum skilað rétt um 15 milljónum til Reykjadals. Hann safnar verðlaunum, fær styrki frá fyrirtækjum og er núna að koma að stækkun húsnæðiskostar Reykjadals. Allt þetta gerir hann án endurgjalds og fær fólk og fyrirtæki með sér í þetta verkefni. 


Við í GM erum ofboðslega stolt af Palla og á hann þessi verðlaun svo sannarlega skilið. Palli var að vonum ánægður og stoltur af þessum verðlaunum. " Þetta er sannarlega mikill heiður og þakka ég kærlega fyrir mig. Pallaopen hefur stækkað og dafnað vel undanfarin ár og mér finnst svo gaman að sjá áhugann frá okkar meðlimum og ég skynja það mjög vel hversu miklu máli þetta skiptir okkur. Þetta eru verðlaun fyrir alla GM félaga og við getum verið virkilega stolt af Pallaopen".


Svo minnum við á að næsta Pallaopen fer fram laugardaginn 13. júní og hlökkum við til að sjá ykkur sem flest þar :)