GM félagi dagsins

GM félagi dagsins er Helgi Pálsson

Forgjöf. 25,8 núna, en hefur verið lægri.
Hvenær varsðstu félagi í GM?
Árið 2007.
Af hverju byrjaðirðu að spila golf?
Mér var boðið að taka þátt í golfferð með stjórn Múrarafélags Reykjavíkur í Öndverðarnesi og það kveikti áhugann. Þetta var um síðustu aldamót.
Hvað er skemmtilegast við golfið?
Félagsskapurinn og leikurinn sjálfur. Útiveran í mismunandi veðri og fjöldi mismunandi golfvalla gera leikinn fjölbreyttan og enn áhugaverðari.
Hvernig hefur golfið gengið hjá þér?
Æ, svona upp og ofan. Það hefur ekki gengið vel að ná forgjöfinni niður.
Hefurðu farið holu í höggi?
Já, 10. júlí 2024 á 7. braut á golfvellinum í Mosó.
Eftirminnileg atvik eða sögur af golfvellinum?
Það er alltaf gaman að spila og hver leikur eftirminnilegur út af fyrir sig þó hann sé kannski ekki saga til næsta bæjar. Það getur ýmist verið skemmtilegt eða pirrandi þegar óboðnir aðilar taka þátt og trufla eða tefja leikinn um sinn. Ég hef til dæmis orðið að hinkra eftir að dádýrahjörð ákvað að smakka á grínunum á velli einum sem ég spilaði á í Ameríku. Svo eru það kanínurnar á Spáni sem eru þó fljótar að láta sig hverfa og kríurnar hér heima sem telja sig eiga völlinn og reyna að reka golfspilarana í burtu með því að steypa sér niður með gargi og látum.
Hvað er draumahollið þitt?
Það vill svo vel til að ég spila einmitt með þeim sem mér finnst skemmtilegast að spila með og það eru þeir Snorri Hlíðberg, Viðar Sveinbjörnsson og Skúli Baldursson. Hins vegar er nú gaman að láta sig dreyma um að spila einn hring með þeim Rory McIlroy, Tommy Fleetwood og Shane Lowry.
Uppáhaldsvöllur?
Hérlendis er það Hlíðavöllur en svo er Lo Romero á Spáni einstaklega skemmtilegur völlur.
Hlíðavöllur eða Bakkakot?
Ég spila frekar á Hlíðarvelli en Bakkakotið er skemmtilegur 9 holu völlur.
Besti kylfingurinn sem þú hefur spilað með?
Þessari spurningu er erfitt að svara, af því að það getur verið að besti kylfingurinn sé ekki endilega sá sem spilar best heldur sá sem er léttur og skemmtilegur í spilamennskunni og því besti félaginn.
Spilaru golf í golfhermum yfir vetrarmánuðina?
Nei, ekki get ég sagt það, en þó komið fyrir að ég taki einn og einn leik.
Spilarðu alltaf golf með sömu vinunum eða ertu dugleg/ur að skrá þig í holl þar sem þú þekkir fáa?
Hérna heima spila ég oftast með sömu golffélögunum, en það er líka gaman að spila með nýju fólki. Erlendis spila ég oft með fólki sem ég þekki lítið sem ekkert og af mismunandi þjóðernum og það er ótrúlega gaman að því.
Ertu dugleg/ur að taka þátt í starfinu í GM? Ef svo er, hvað finnst þér skemmtilegast?
Já, ég er í mótanefnd og ræsi út í mótum hjá klúbbnum og finnst gaman að taka þátt á þann hátt. Einnig hittir maður fjölmarga spilara á mótunum og fylgist þannig með gangi mála. Þá hef ég verið í stjórn 65+ og tek þátt í því starfi, sem er mjög gefandi og skemmtilegt.
Er eitthvað hjá okkur í GM sem þeir finnst mega betur fara? Klúbburinn hefur í gegnum tíðina tekið góð framfaraskref og gert vel fyrir golfleikinn og félagana. Að mínu mati er hann með þeim bestu hérlendis.
Og að lokum, hvernig fer um þig í GM? Þar er ég á heimavelli í bókstaflegum skilningi !
Svo biðjum við þig um að tilnefna næsta kylfing vikunnar: Steinunn Þorkelsdóttir.
