Opnun Hlíðavallar!

Hlíðavöllur opnar - vinnudagur á laugardaginn!

Ágætu GM félagar.
Nú styttist heldur betur í að við getum opnað Hlíðavöll. Veðurspáin er góð fyrir komandi helgi, rigning og hiti. Svo eru veðurspárnar nokkuð sammála um að næsta vika verði bara nokkuð góð.
Við höfum því tekið þá ákvörðun að opna Hlíðavöll næstkomandi mánudag, 11. maí.
Okkar árlegi vinnudagur verður núna á laugardaginn og hefst hann klukkan 10:00. Mæting er við vélaskemmuna. Það er ýmislegt sem þarf að gera fyrir opnun og gerum við ráð fyrir því að vinnudagurinn standi til kl. 13:00. Að honum loknum verður boðið upp á súpu á Blik.
Allir þeir sem koma á vinnudaginn fá að forbóka sig í golf í næstu viku :)
Veðurspáin er mjög hagstæð um helgina, góður hiti og talsvert af vætu. Við ætlum því að gefa vellinum helgina til þess að jafna sig eftir þennan kuldakafla síðustu daga. Völlurinn lítur virkilega vel út og mun taka vel á móti ykkur á mánudaginn :)
Við munum opna fyrir rástímaskráningu kl. 14:00 á laugardaginn. Þá verður hægt að fara inn og bóka rástíma. Minnum á nýja appið Mitt Golf.
Smellið hér til að skoða það betur!
Golfbúðin og afgreiðslan okkar opnar einnig á mánudaginn.
Hlíðavöllur er eingöngu opinn fyrir félagsmenn í GM til þess að byrja með.
Varðandi Bakkakot, þá munum við láta ykkur vita eftir helgi hvenær við getum opnað þar. Þessi kuldakafla hefur gert okkur aðeins erfitt fyrir upp í Koti þar sem það er ennþá talsvert frost þar í jörðu. Við vonumst að sjálfsögðu til þess að geta opnað upp í Koti sem allra fyrst.
Gleðilegt golfsumar.
Kær kveðja.
Stjórn og starfsfólk GM
