GM félagi dagsins

GM félagi dagsins er hún Guðný Sif Gunnarsdóttir
Nafn og forgjöf.
Guðný Sif Gunnarsdóttir – 19,8 í forgjöf.
Hvenær varðstu félagi í GM?
Desember 2023. Algjör skyndiákvörðun – sá bara auglýst ungmennagjald og unglingurinn innra með mér sagði já takk. Engin eftirsjá.
Af hverju byrjaðirðu að spila golf?
Get ekki sagt að ég sé með golfið í blóðinu, en ég byrjaði sem barn þar sem ég var skráð á sumarnámskeið, eins og maður gerir. Síðan var bróðir minn eitthvað að fikta í þessu og ég, krakkinn sem vissi aldrei hvað mig langaði að æfa, prófaði allt.
Það var þó ekki fyrr en árið 2020, þegar öll fjölskyldan mín féll aftur fyrir golfinu, sem ég fór að taka kylfurnar aðeins aftur upp – og svo af fullum krafti sumarið 2024 þegar ég byrjaði í GM af alvöru. Ekkert annað í stöðunni. Svo er afi minn, Halli Bjarna, ræsir á öllum mótum hjá Golfklúbbi Akureyrar – einhverjir ættu að kannast við gamla, þannig að þetta hefur greinilega alltaf legið einhvers staðar í genunum… djúpt.
Hvað er skemmtilegast við golfið?
Fyrst og fremst fólkið – ég hef kynnst ótrúlega skemmtilegu fólki í gegnum golfið. Svo er það auðvitað útiveran, friðurinn og þetta dásamlega logn á Hlíðavelli… þegar það er logn 😌
Hvernig hefur golfið gengið hjá þér?
Upp og niður, alveg hreinskilnislega. Ég á það til að verða pínu keppnis og þegar sá vágestur mætir þá fer allt úr skorðum. Ég held að einhver hugafarsbreyting þurfi að eiga sér stað í kollinum á mér – vinn í því. Ég er á námskeiði hjá Katrínu 😀
Hefurðu farið holu í höggi?
Já, svo ótrúlega vildi til að ég fór í holu í höggi í fyrsta sinn síðasta sumar, við mikinn fögnuð undirritaðrar. 56° kylfa á 9. holu í Bakkakoti – og ég er nokkuð viss um að fólkið á 5. braut hafi heyrt í mér. Þetta var falleg stund.
Eftirminnileg atvik eða sögur af golfvellinum?
Holu í höggi í ágúst í fyrra stendur upp úr. Það verður seint toppað – nema þá kannski með annarri holu í höggi… maður má alltaf vona.
Hvað er draumahollið þitt?
Myndi velja Georgia Ball fyrir góð tips og pepp, Rory McIlroy til að halda háttvísinni í skefjum og Shane Lowry fyrir írska ruglið. Fullkomið jafnvægi, ef þú spyrð mig.
Uppáhaldsvöllur?
Hlíðarendavöllur og Hlíðavöllur – ofc.
Hlíðavöllur eða Bakkakot?
Hlíðavöllur
Besti kylfingurinn sem þú hefur spilað með?
Bróðir minn – hann er með aðeins betra jafnaðargeð en ég.
Spilarðu golf í golfhermum yfir vetrarmánuðina?
Já, aðeins – mætti alveg vera meira. Ég er þó í góðu holli einu sinni í mánuði fram að sumri og fer í nokkra golftíma, svo maður heldur aðeins við tilfinningunni… eða reynir.
Spilarðu alltaf golf með sömu vinunum eða ertu dugleg að skrá þig í holl þar sem þú þekkir fáa?
Ég var ótrúlega dugleg að skrá mig með hverjum sem er, en viðurkenni að ég var lengi smá smeyk við að skrá mig með fólki sem var með betri forgjöf en ég.
Ekki láta það stoppa þig, kæri lesandi. Maður lærir svo ótrúlega mikið af því að spila með fólki sem er betra en maður sjálfur – og allir boðnir og búnir að gefa ráð. Er þetta ekki einmitt til þess að hafa gaman?
Ég byrjaði ein í golfinu í Mosó og hef kynnst svo ótrúlega mörgu frábæru fólki. Svo er Ísland svo lítið að oftar en ekki þekkjum við sömu manneskjuna… eða einhvern nátengdan henni.
Ertu dugleg að taka þátt í starfinu í GM? Ef svo er, hvað finnst þér skemmtilegast?
Já, ég var rosalega dugleg að mæta í kvennagolfið fyrsta sumarið mitt og kynntist þar frábærum konum sem í dag eru mínar bestu golfkonur. Það er með því skemmtilegasta sem ég hef tekið þátt í og ég mæli hiklaust með þessu fyrir allar konur sem eru að byrja eða hugsa um að byrja.
Maður hefur alltaf einhvern hauk í horni til að fara út með eða skrá sig með ef eitthvað losnar í holli. Ég prufaði líka Bændaglímuna í fyrsta skipti – virkilega gaman – og tala nú ekki um lokamótið í kvennagolfinu og lokahófið eftir mót.
Er eitthvað hjá okkur í GM sem þeir finnst mega betur fara?
Það er eiginlega erfitt að finna eitthvað til að kvarta yfir – sem segir kannski sitt. Ef eitthvað mætti bæta, þá væri það helst að lengja golfvertíðina… eða bæta aðeins við sól og logni. Setja ljóskastara á seinni 9?
Og að lokum, hvernig fer um þig í GM?
Ótrúlega vel. Þetta er svo heimilislegt og vinalegt samfélag og það tók mig enga stund að verða hluti af „hópnum“. Það er alltaf gaman að kynnast nýju fólki, spila saman golf og – síðast en ekki síst – hafa gaman.
Svo biðjum við þig um að tilnefna næsta kylfing vikunnar 😊
Ég ætla að tilnefna nöfnu mína og frænku Guðnýju Helgadóttur.
