GM félagi dagsins!

GM félagi dagsins er Bjarnþór Erlendsson

Forgjöf - rétt undir 10
Hvenær varsðstu félagi í GM?
2010
Afhverju byrjaðirðu að spila golf?
Eina íþróttin sem ég hafði ekki prufað í Hveragerði, tel meira að segja Bridds og skák með (íþróttasjúkur).
Hvað er skemmtilegast við golfið?
Félagsskapurinn og aftur félagsskapurinn, svo má sumrið vera eins og í fyrra.
Hvernig hefur golfið gengið hjá þér?
Ég er hamfara golfari í víðasta skilningi, eins og fyrrverandi vinir mínir Siggeir Kolbeins og Óskar Sæmann hafa lýst áður hér sem kylfingar vikunnar, er með ljótustu golfsveiflu sem hefur sést á golfvelli, ef golfsveiflan hjá mér væri setti í samhengi við gang tegundir hesta þá væri löngu búið að skjóta mig. Stefni á að vera með á milli 5 og 15 í forgjöf í lok sumars, er allveg jafn líklegur í báðar áttir.
Hefurðu farið holu í höggi?
Já tvisvar á 12. og 18. á Hlíðavelli, geri mér það að leik þegar ég er spurður að vera ekkert að árétta að 12. þá er núverandi 18 ,oft skemmtilegur svipur á fólki sem þekkir mig ekki neitt og áttar sig á að núverandi 12 er að sjálsögðu par 5, en eftir að hafa spilað með mér finnst þeim kanski ekkert ótrúlegt að ég myndi slá grjó grjót fugl grjót og svo í holuna.
Eftirminnileg atvik eða sögur af golfvellinum?
Hér gæti ég skrifað nokkrar bækur.
Mér hefur tekist að sjanka í Heiðu mína af 60-70 m beint í herðablaðið og hún steinlá(það var seinasta holan sem var spiluð þann daginn)
Mér hefur tekist að slá í gæs á 16. á Hlíðavelli, sem blessunarlega varð ekki meint af, henni til varnar þá var hún á miðri braut og hefur væntanlega talið það öruggasta staðinn eftir að hafa séð til mín.
Hitti félaga minn handdboltakempu og stór golfara(sem ég nafngreini ekki) eftir hring og spurði hann hvernig honum hefði tekist að fá 14 högg á 12. núverandi 18. á Hlíðavelli, sem og hann svaraði ekkert mál, mér til ómældrar ánægju komst ég að því skömmu seinna á öðrum degi í meistaramóti í ”Tiger”holli hvernig væri hægt að ná fram þessum frábæra árangri, stutta svarið sjanka þrisvar out bæta svo við að draga hann þrisvar out(mér til varnar hælarnir voru miiiiiiklu nær skurðinum) endaði á að taka sand wedge og vippa yfir skurðinn, strunsaði inn í skála náði mér í sveiflujafnara og sjankaði ekki meir á þeim hring.
Heiða og Sara Jónsdóttir áttu að verða vitni þegar ég fór holu í höggi seinna skiptið en voru í krampakasti yfir sögu af hægðum sem Sverrir Freyr Þorleifsson hafði sagt þeim skömmu áður, þannig Sverrir var sá eini í hollinu ásamt mér sem sá höggið, sem ég var þó búinn að tala ofan í holuna nánast frá því boltinn lagði af stað.
Svo er líka minnisstætt þegar Kiddi klúbbmeistari fór holu í höggi á 15. fögnuðurinn gríðarlegur, en vitandi í hvaða hópi hann var að spila (16 misgáfulegir golfarar Bara Fuglar) fóru að renna á hann tvær grímur, en var hann búinn að finna það út áður en við byrjuðum á 16. að hann væri ennþá tryggður hjá Verði fyrir svona óhöppum, sem minkaði gleðina alls ekki.
Ég er víst ekki launaður rithöfundur þannig við látum staðar numið hér.
Hvað er draumahollið þitt?
Heiða mín fengi alltaf að fljóta með, John Daly yrði að vera þarna, svo sem fulltrúi allra vina minna sem ég geri ekki upp á milli kæmi Ricky Gervais með, kann reyndar eitthvað lítið í golfi, en hann kemur með húmorinn.
Uppáhaldsvöllur?
Grýluvöllur, knattspyrnuvöllur Hamars þar hafa netmösskvarnir á mörkunum fengið að finna fyrir hægri, vinstri og einstaka skalla frá mér. En golfvellir úff, tek heima vellina Hlíðavöll og Gufudalsvöll(hjartað) úti í hinum stóra heimi Bay Hill, Carya ,Waldorf Astoria,Single Creek og Lykia Links(sem ég hef spilað) er pottþétt að gleyma einhverjum perlum af nógu að taka.
Hlíðavöllur eða Bakkakot?
Hlíðavöllur
Besti kylfingurinn sem þú hefur spilað með?
Heiða (athygli skal veitt að þetta svar kom á innan við sek😊) Hef verið þess heiðurs aðnjótandi að spila með gríðarlegu magni af kylfingum í fremstu röð karla og kvenna meginn(gæti verið ástæðan fyrir því að við erum ekki mikið að vinna með kylfinga á PGA og LPGA mótaröðunum þau bíða því sjálfsagt ekki bætur)
Spilaru golf í golfhermum yfir vetrarmánuðina?
Reyni eftir fremsta megni að spila golf en mæti yfirleitt með góða skapið.
Spilarðu alltaf golf með sömu vinunum eða ertu duglegur að skrá þig í holl þar sem þú þekkir fáa?
Skrái mig með öllum, er drull ef fólk heldur uppi leikhraða og gengur vel um.
Ertu dugleg/ur að taka þátt í starfinu í GM? Ef svo er, hvað finnst þér skemmtilegast?
Meistaramótið, Bændaglíman og Pallaopen eru ofarlega á lista yfir viðburði sem eru mjög skemmtilegir.
Er eitthvað hjá okkur í GM sem þeir finnst mega betur fara?
Taka upp dauðarefsingar ef fólk gerir ekki við boltaför, kylfuför, rakar ekki bönkera og heldur ekki leikhraða😊
Og að lokum, hvernig fer um þig í GM?
Mjög vel, geggjaður klúbbur.
Svo biðjum við þig um að tilnefna næsta kylfing vikunnar 😊
Verður það ekki að vera KLÚBBMEISTARINN Guðleifur Kristinn Stefánsson, sem reyndar ásamt mér gæti orðið til þess að þessum kynningum yrði hætt.
