Pallaopen - Úrslit

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 22. maí 2021

Síðastliðinn laugardag fór Pallaopen fram á Hlíðavelli.

Þetta er þriðja árið sem við höldum þetta glæsilega styrktarmót og rennur allur ágóði mótsins beint til sumarbúðanna í Reykjadal. Í ár söfnuðust rétt rúmlega 3. milljónir króna og verður þeim varið í uppbyggingu á búningsklefum í sumarbúðunum. Einnig ætlum við okkur að styrkja langveik börn hér í Mosfellsbænum.

Keppt var í 2ja og 4ra manna texas scramble og hér má nálgast úrslitin - Pallaopen úrslit

Það voru þau Kári Tryggvason og Rannveig Rúnarsdóttir sem sigruðu í 2ja manna scramble

Í 4ra manna scramble voru það þau Hermann Geir Þórsson, Freydís Bjarnadóttir, Tomas Salmon og Bára Salmon Friðjónsdóttir.

Uppselt var í mótið, alls 244 keppendur og þökkum við öllum kærlega fyrir komuna og stuðninginn.

Einnig þökkum við Palla Líndal kærlega fyrir og hlökkum til að halda þetta mót um ókomin ár :)