Meistaramót GM - úrslit

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 5. júlí 2021

Meistaramóti GM fór fram í síðustu viku og kláraðist í rjómablíðu síðastliðinn laugardag.

Það voru þau Auður Bergrún Snorradóttir og Sverrir Haraldsson sem sigruðu sína flokka og eru því nýkrýndir klúbbmeistarar Golfklúbbs Mosfellsbæjar. Óskum við þeim kærlega til hamingju :)

Það var hörku spenna á lokadegi og þurftu þeir Sverrir og Björn Óskar að fara í þriggja holu umspil sem endaði þannig að Sverrir sigraði með einu höggi. Í kvennaflokki voru miklar sviptingar á lokadegi en þegar að Auður Bergrún náði forystunni á seinni níu holum vallarins lét húna hana aldrei af hendi þrátt fyrir að þær María Eir og Kristín Sól hafi verið að nálgast hana. Auður tryggði sér svo endanlega titilinn með glæsilegum fugli á 18. braut.

Hér að neðan má svo sjá úrslit úr þeim flokkum sem kláruðu á laugardaginn.

2. flokkur kvenna

  1. 1. sæti - Harpa SIgurbjörnsdóttir – 359 högg
  2. 2. sæti – Harpa Iðunn Sigmundsóttir – 366 högg
  3. 3. sæti- Hlín Hlöðversdóttir- 398 högg

2. flokkur karla

  • 1. sæti -Halldór Ingi Hlöðversson
  • 2. sæti – Jón Smári Pétursson
  • 3. sæti – Ingvar Ormarsson

1 flokkur kvenna

  1. 1.Sæti - Sara Jónsdóttir 356 högg
  2. 2.sæti - Edda Herbertsdóttir – 364 högg
  3. 3. sæti - Erla Marý Sigurpálsdóttir – 365 högg

1 .flokkur karla

  • 1.Sæti - Egill Ásbjarnarson – 313 högg
  • 2.Rafn Jóhannesson – 315 högg
  • 3.Þorsteinn Orri Eyjólfsson – 317 högg

Mfl kvenna

  • 1.Sæti – Auður Bergrún Snorradóttir, 315 högg
  • 2.María Eir Guðjónsdóttir – 318 högg
  • 3.Kristín Sól Guðmundsdóttir, 319 högg

Mfl karla

  • 1.Sæti – Sverrir Haraldsson 288 högg
  • 2.Björn Óskar Guðjónsson288 högg
  • 3.Theodór Emil Karlsson293 högg

Óskum við verðlaunahöfum kærlega til hamingju með árangurinn.

Einnig þökkum við þeim fjölmörgu sem mættu í lokahófið og gerðu það að þeirri stórkostlegu skemmtun sem úr varð.