GM félagi dagsins

GM félagi dagsins er Guðleifur Kristinn Stefánsson - betur þekktur sem Kiddi klúbbmeistari.

Forgjöf
9 Hvenær varðstu félagi í GM?
2002
Afhverju byrjaðirðu að spila golf?
Ég fór nokkrum sinnum með vini mínum á ungligsárunum og fannst eitthvað spennandi við sportið. Síðan kynntist ég mági mínum honum Arnari Sigurbjörnssyni og hugsaði með mér, ef hann getur verið góður í golfi þá ætti ekki að vera neitt mál fyrir íþróttarmann eins og mig að geta eitthvað.
Hvað er skemmtilegast við golfið?
Félagsskapurinn er númer eitt og síðan alltaf gaman að spila með og kynnast nýju fólki.
Hvernig hefur golfið gengið hjá þér?
Það er bara eins og með veðrið slæmt í dag og minna slæmt á morgun. Annars finnst mér þetta alltaf svo gaman, þegar spilamennskan er góð þá er það bara bónus.
Hefurðu farið holu í höggi?
Já, 15. á Hlíðavelli. Það bergmálar ennþá í Esjunni eftir fagnaðarlætin en bara í látunum hjá strákunum sem voru með mér....ég var ekkert hissa og átti von á þessu.
Eftirminnileg atvik eða sögur af golfvellinum?
Man voða lítið eftir að komið er út á völl þar sem að "upphitunin" tekur mikið á minnið.
Var að spila í forkeppni Titleist fyrir mörgum árum og lenti í holli með tveim sem ég þekkti ekki neitt en þeir voru miklir vinir. Það var mjög mikill vindur í fangið á 5. teig og ég slæ fínasta högg sem rétt dreif inn á braut. Þá kemur annar og slær boltann í hátt slæs og boltinn endar í bönkernum á 7. holu. Vinur hans hlær ekkert eðlilega mikið af honum og er varla búinn að jafna sig áður en hann slær sjálfur. Hann hefði betur átt að sleppa því þar sem að hann sky-ar boltann sinn með þeim afleiðingum að hann endar 3 metra frá holu inni á 4. gríni. Getið rétt ýmindað ykkur hversu mikið vinur hans hló. Þegar ég var á 11. holu að spila með Arnari mági og hann er að slá sitt annað högg. Hann smell hittir boltann og um leið og það gerist heyrist í honum, þetta verður fugl. Hann er nú yfirleitt ekki sannspár maður en þarna hafði hann rétt fyrir sér því þegar boltinn var að nálgast grínið þá flýgur kría fyrir boltann og steinlá. Krían var þó bara eini fuglinn sem hann fékk á þessum hring.
Mér er líka minnistætt svipurinn á Ása Jóns vini mínum þegar ég fór holu í höggi. Eftir öskrin og lætin í strákunum þá henti ég kylfunni frá mér og hljóp í áttina að Ása og gerði mig líklegan að hoppa í fangið á honum. En um leið og ég sá svipinn á honum sem lýsti sér þannig að þetta væri líklega að fara að koma honum í langt veikindaleyfi þá snar stoppaði ég. Frekar skrítið þar sem að ég er ekkert eðlilega íþróttamannslega vaxinn og holdgerfingur heilbrigðs matarræðis.
Hvað er draumahollið þitt?
Þetta svar er einfalt. John Daly, Tiger Woods og Rabbi vinur minn. Við Rabbi myndum líta út eins og bindindismenn með þessum snillingum.
Uppáhaldsvöllur?
Vestmannaeyjavöllur, það er bara eitthvað svo sjarmerandi að spila golf á eyjunni fögru í logni sem er nánast alla daga.
Hlíðavöllur eða Bakkakot?
Hlíðavöllur
Besti kylfingurinn sem þú hefur spilað með?
Rétt svar eru dætur mínar Sara og Eva en ég verð líka að minnast á hann Ágúst Jensson, Hann getur verið svo rosalega góður þangað til að hann verður ógeðslega lélegur. Hann getur samt slegið 130 metra sjankhögg bæði með opin og lokuð augun.
Spilaru golf í golfhermum yfir vetrarmánuðina?
Já, eitthvað en er samt ekkert eðlilega lélegur í tölvuleikjum.
Spilarðu alltaf golf með sömu vinunum eða ertu duglegur að skrá þig í holl þar sem þú þekkir fáa?
Spila alltaf með golfhópnum einu sinni í viku. Oft með konunni og síðan bara með hinum og þessum. Alltaf gaman að kynnast nýju fólki.
Ertu dugleg/ur að taka þátt í starfinu í GM? Ef svo er, hvað finnst þér skemmtilegast?
Missi ekki af Meistaramótinu og Bændaglímunni, oftst með í Titleist holukeppninni en sakna hins vegar Hefnd vallastjórans.
Er eitthvað hjá okkur í GM sem þeir finnst mega betur fara?
Það þarf klárlega stærra dansgólf í lokahófi Meistaramótsins.
Og að lokum, hvernig fer um þig í GM?
Hvergi betra að vera.
Svo biðjum við þig um að tilnefna næsta kylfing vikunnar 😊
Ég ætla að velja liðstjóra minn í Kempunum og stórsleggjuna Kristínu Ingu Guðmundsdóttur
