Aðalfundur Golfklúbbs Mosfellsbæjar

Aðalfundur Golfklúbbs Mosfellsbæjar.
Ágætu GM félagar.
Aðalfundur Golfklúbbs Mosfellsbæjar verður haldinn mánudaginn 1. desember 2025 í íþróttamiðstöðinni Kletti.
Fundurinn hefst stundvíslega kl. 17:30 og er dagskrá hans sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og fundaritara.
2. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á vegum félagsins
3. Áritaðir reikningar kynntir
4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikningar lagðir fram til samþykktar
5. Lagabreytingar
6. Rekstraráætlun komandi starfsárs kynnt
7. Ákvörðun félagsgjalda
8. Kosning stjórnar, formanns og tveggja skoðunarmanna reikninga
9. Kosning aganefndar og kjörnefndar
10. Önnur mál.
Við viljum hvetja ykkur til þess að mæta á aðalfundinn, taka þátt í þeim umræðum sem þar eru og hafa þannig áhrif á framtíð Golfklúbbs Mosfellsbæjar. Ef þið hafið áhuga á því að taka þátt í okkar starfi, stjórn eða nefndum þá hvetjum við ykkur til þess að bjóða ykkur fram.
Stjórn GM.
