GM félagi dagsins

16. febrúar 2026

GM félagi dagsins er hún Guðný Helgadóttir

Nafn og forgjöf.

Guðný Helgadóttir – 19,1 í forgjöf.


Hvenær varðstu félagi í GM

Ég gekk í GM sumarið 2007 eftir að við fluttum frá Höfn í Mosfellsbæ.


Af hverju byrjaðir þú að spila golf?

Já góð spurning... byrjaði líklega í kringum 95 og þá var það sonurinn sem hvatti mig til að koma með út á golfvöll og prufa. Þetta væri svo gaman.   Mér fannst þetta nú ekkert æðislegt til að byrja með og þurfti bara að hafa smá fyrir þessu ( Hafði raunar nokkrum árum áður sagt að þetta vera hallærissport 😊) En það voru svo margir vinir að spila og smá saman var þetta alveg geggjað gaman. Og endaði með því að ég  starfaði mikið fyrir golfklúbbinn í ýmsum nefndum og var m.a.  formaður GHH í 3 ár – mjög skemmtileg og viðburðarrík ár.


Hvað er skemmtilegast við golfið?

Tvímælalaust er það félagsskapurinn og útiveran - alltaf að kynnast nýju og nýju fólki.

Og svo er mjög gaman að fara í golfmót á hina ýmsu golfvelli. Það er bara allt gott við golf.


Hvernig hefur golfið gengið hjá þér?

Þetta hefur gengið allavega farið upp og niður í forgjöf.. er mjög dugleg að skrá inn hringi.

Hef líka náð að spila mig nokkrum sinnum í keppnissveit öldunga kvenna GM   og farið í nokkrar keppnisferðir með þeim mjög lærdómsríkt og skemmtilegt.


Hefur þú farið holu í höggi?

Þegar ég byrjaði að fylla út svörin í þetta skjal var svarið NEI en núna..

Já í dag föstudaginn 13. Febrúar á EL VALLE  í 12-14 m/s. 15.hola vallarins par 3, 115m löng. Við vorum að tala um að segja þetta gott á þessum hring en þá gerðist þetta setti boltann í holuna og við kláruðum hringinn.


Eftirminnileg atvik eða sögur af golfvellinum?

Hef tvisvar verið í holli með fólki sem fór holu í höggi - það er gaman.

Svo eru nokkur atvik sem ekki þola að fara á prent 😊


Hvað er draumahollið þitt?

Þessi spurning er nú frekar erfið... en  hringur með börnunum og eiginmanni væri draumahringur fyrir mig.


Uppáhaldavöllur?

Alltaf í fyrsta sæti er það GHH Golfklúbbur Hornafjarðar þar byrjaði þetta allt -skemmtilegir félagar og tala nú ekki um fegurðina.  Já ég er hlutdræg 😊

En Hlíðarvöllur er minn völlur í dag - hann er frábær í toppstandi og alveg hreint frábær.

Toppflólk þar á ferð.


Hlíðavöllur eða Bakkakot?

Hlíðavöllur, er svo heppin að geta gengið út á völl. En Bakkakotið er mjög skemmtilegt og góðar breytingar þar.


Besti kylfingur sem þú hefur spilað með?

Hef spilað með mörgum góðum kylfingum en Hákon minn er alveg í uppáhaldi hjá mér.


Spilarðu golf í golfhermum yfir vetrarmánuðina?

Gerði það þegar þeir komu í GM  en núna er ég svo heppin að vera orðin frístundarfræðingur í fullu starfi og spila golf á Spáni yfir veturinn.  Alger lúxusgella 😊


Spilarðu alltaf golf með sömu vinunum eða ertu dugleg að skrá þig í holl þar sem þú þekkir fáa?

Ég var alveg óhrædd við að fara bara þar sem var laust en núna spila ég meira á morgnanna og fer bara þar sem er laust og einnig oft með ýmsum vinum.


Ertu dugleg við að taka þátt í starfinu í GM?  Hvað finns þér skemmtilegast?

Alltaf gaman að mæta í meistaramót og Bændaglímu. 

Svo vil ég mæta á vinnudag þegar ég er heima, finnst það mjög gaman.

Var dugleg við að mæta í kvennastarf þegar ég var að byrja í klúbbnum en er það ekki lengur.

En finnst þetta kvennastarf innan klúbbsins alveg frábært.

Gaman að segja frá því að þegar ég var rétt að byrja í golfi fyrir austan þá fór ég með Kjalarkonum til Danmerkur og svo seinna til Spánar  í golfkennslu - alveg ógleymanlgar ferðir mikið fjör - Þökk sé ofurgolfaranum Lailu vinkonu minni.

 

Er eitthvað hjá okkur í GM sem mætti betur fara?

Get ekki kvartað yfir neinu. Það eru allir að gera sitt besta.


Og að lokum  Hvernig fer um þig í GM?

Mjög vel - þykir mjög vænt um klúbbinn minn.

Elska að spila golf,  líka þegar ég fer hring og ég man ekki hvernig prikin eiga að snúa í höndunum á mér.   Og muna að lífið er núna



Svo biðjum þig að tilnefna næsta kylfing vikunnar.

Ég ætla að tilnefna minn skemmtilega og góða frænda  ofurgolfarann   Þorvald Borgar