GM félagi dagsins!

GM félagi dagsins er Þorvaldur Borgar Hauksson

Forgjöf?
13,4 en ég er miklu betri en það!!
Hvenær varsðstu félagi í GM?
2018
Afhverju byrjaðirðu að spila golf?
Við vorum í afmælis-, fylleírisferð til Tene árið 2018 og það vantaði einn í hollið hjá strákunum! Ég náttúrulega skellti mér með og það var ekki aftur snúið😉
Hvað er skemmtilegast við golfið?
Það er svo margt skemmtilegt við þetta annars ósanngjarna sport. Oftar en ekki eru meðspilararnir ekki sem verstir og svo er ”upphitunin” og 19. holan stór hluti af skemmtanagildinu. Það er líka eitthvað svo heimskulegt/skemmtilegt við það; að ef þér gengur illa einn daginn, getur þú ekki beðið eftir að komast aftur í golf til að sanna fyrir sjálfum þér að þú sért ekki svona lélegur og svo þegar þér gengur vel, þá getur heldur ekki beðið með að komast aftur út á völl til að sanna fyrir sjálfum þér hvað þú sért góður!! Þetta er helvítis vítahringur!
Hvernig hefur golfið gengið hjá þér?
Fyrstu 3 árin var ég fáranlega góður og féll forgjöfin eins og verðbréfavísitalan í hruninu. Síðustu á hefur svo sem gengið upp og ofan. Hef farið lægst niður í 10,1 (ekki enn náð eins stafs tölu) en hef hækkað aðeins síðustu 2 ár.
Hefurðu farið holu í höggi?
Næsta spurning!!!!
Eftirminnileg atvik eða sögur af golfvellinum?
Þau eru nokkur. Einn meðspilarinn fékk til dæmis símtal á fyrsta teig á Hlíðavelli og fór aðeins afsíðis og baðst svo afsökunar á þessari truflun. Hann spilaði nú ekkert sérstaklega þennan dag og á flötinni á níundu sagði hann okkur að í símanum á fyrsta teig hefði verið kona frá HHÍ að tilkynna honum að hann hefði unnið hæsta vinning á Trompmiða!!
Eftirminnilegt og ekki síður skemmtilegt var þegar ég var Bóndi í Bændaglímunni 2022 og rústaði góðum félaga Davíð Baldri! Og svo náttúrulega ALBATROSSINN sem ég og Siggeir Kolbeins tókum í sameiningu í Bændaglímunni í fyrra á 8undu. Spiluðum hana á 2. höggum takk fyrir takk!
Hvað er draumahollið þitt?
Til þess að gera ekki upp á milli GolfNaglanna minna, þá segi í bara Daly feðgar á móti okkur feðgum, mér og Hauki Helga. Holukeppni með forgjöf og við pabbarnir þurfum að drekka einn bjór fyrir hverja unna holu. Verst að það mundi lítið sem ekkert bíta á Daly!
Uppáhaldsvöllur?
Le Robinie á Ítalíu. Kannski ekkert endilega sá flottasti eða erfiðasti en klárlega minn uppáhalds.
Hlíðavöllur eða Bakkakot?
Hlíðavöllur
Besti kylfingurinn sem þú hefur spilað með?
Það er Heiðursfélagi GolfNaglanna Kristófer Karl
Spilaru golf í golfhermum yfir vetrarmánuðina?
Já svona einu sinni til tvisvar í mánuði.
Spilarðu alltaf golf með sömu vinunum eða ertu dugleg/ur að skrá þig í holl þar sem þú þekkir fáa?
Eins og flestir, spila ég oft með sama genginu en ég er fáranlega duglegur að skrá mig með öðrum. Í fyrra spilaði ég til dæmis með 105 mismunandi kylfingum.
Ertu dugleg/ur að taka þátt í starfinu í GM? Ef svo er, hvað finnst þér skemmtilegast?
Svona lala. Við GolfNaglarnir tökum alltaf þátt í Víking-deildinni (erum núverandi meistarar). Meistaramótið er svo náttúrulega SKILDA sem og Bændaglíman, sem er sennilega einn af hápunktum sumarsins, þó svo að ég fari oftast í brjálaða fýlu þegar Gústi vinur minn (framkvæmdarstjóri) er búinn að hagræða úrslitunum sér í vil!!
Er eitthvað hjá okkur í GM sem þeir finnst mega betur fara?
Já það er margt! Fleiri ruslatunnur, ódýrari bjór, sléttari teigar, ódýrari bjór, minni vindur og ódýrari bjór!! Annars bara nokkuð góður😉
Og að lokum, hvernig fer um þig í GM?
Það fer voðalega vel um mig hérna í GM, enda ekki af ástæðulausu að ég verji lunganu úr sumrinu hérna á vellinum.
Svo biðjum við þig um að tilnefna næsta kylfing vikunnar 😊
Ég ætla svo að skora á hinn helminginn í Albatrossnum mínum hann Siggeir Kolbeinsson
