GM félagi dagsins

GM félagi dagsins

GM félagi dagsins er hann Óskar Sæmann Axelsson.
Forgjöf.
8,7
Hvenær gerðist þú félagi í GM?
Árið 2002 skráði ég mig í klúbbinn, sem var alveg óvart því ég bjó í Staðarhverfi í Grafarvogi og var búinn að skrá mig í GR að ég hélt, en vitanlega fór maður bara á biðlista. Þannig að góð ráð voru dýr og af rælni fann ég þennan klúbb í Mosó sem ég bara vissi ekkert af, talaði við okkar allra besta Hauk Hafsteinsson þáverandi framkvæmdastjóra klúbbsins og hann bara skráði mig með það sama. Svo kom að því ca árið 2005 að ég fékk fallegt bréf frá GR um að núna kæmist ég í klúbbinn og því var fljót svarað, og hér er ég enn.
Afhverju byrjaðir þú að spila golf?
Ég byrjaði að fikta við golf í Svíþjóð upp úr ’90, þar sem ég heimsótti frændfólk mitt mikið þar á þessum árum. Þau voru með net og mottu í garðinum og þar byrjaði ég að slá fyrstu höggin. Ég hafði upp frá þessu áhuga en enginn á Íslandi í kring um mig spilaði golf þannig þetta var bara eitthvað sem ég tók í þegar ég var úti. Svo árið 2001 fór ég á námskeið hjá Derrick Moore golfkennara í Korpu og síðan hef ég ekki horft til baka.
Hvað er skemmtilegast við golfið?
Félagsskapurinn og útiveran.
Hvernig hefur golfið gengið hjá þér?
Mjög vel held ég bara.
Hefurðu farið holu í höggi?
Næsta spurning takk ! Man ekki einu sinni eftir að hefa verið nálægt, enda mjög gleyminn.
Eftirminnileg atvik eða sögur af golfvellinum?
Nýlegt og gjörsamlega óþolandi atvik kom fyrir okkur vinina þann 1. oktober s.l. í Brautarholti. Forsagan er sú, að það er ein ákveðin regla sem sett var fyrir nokkrum árum í golfhópnum okkar þar sem ”hole in one” vinnur alltaf geimið, það er bara ákveðið tromp sem trompar allt.
Ég og Ásbjörn Jónsson vinur minn ákváðum að fara í Brautarholt að prufa nýju holurnar áður en lokar. Við ákveðum á fyrsta teig að leikur dagsins sé forgjafalaus holukeppni þar sem það munaði ekki þannig á forgjöfinni hjá okkur. Alla vega þá var það svo að ég vann holukeppnina á 14 holu þar sem ég spilaði fyrri níu holurnar á tveimur undir pari vallar og hélt uppteknum hætti á fyrri hluta seinni níu og kláraði geimið. Þegar við tökumst í hendur um að ég hafi unnið leikinn segir Ási ” viltu klára hringinn eða bara rölta upp í skála? ” vitanlega svaraði ég að við værum komnir þarna til að prufa nýju holurnar og værum rétt komnir inn á nýja partinn. Við höldum áfram að spila og komum þá á 17 holu vallarins sem er ca 175 metra löng par 3 hola, vel niður í móti og aðeins á móti sól þannig það var erfitt að sjá boltan allan tíman. Ási tekur upp 5 járnið sitt sem nótabene er held ég mest notaða kylfan í pokanum hans, smell hittir hann í lauflétt fade og ég sá ekki neitt meira. Ási segir við mig í miðju flugi.. ”ég held að þessi sé í” þannig við glápum á eftir boltanum, ég þykist sjá boltann lenda á gríni vinstramegin og rúlla í áttina að holu en er samt ekki viss. Ási segir mjög yfirvegað ” ég held í alvörunni að hann sé í.. ég held ég hafi heyrt hann smella í stönginni” ég veit ekkert hvernig ég á að taka þessu, er ekkert að missa mig úr gleði yfir óstaðfestri ”hole in one” en bið hann að stilla sér upp á teignum og smelli af honum mynd ”just in case”, svona gott að eiga, vont að gleyma moment. Svo tekur við mega vesen þar sem ég á að slá, það er náttúrulega ekki hægt að slá á eftir svona höggi og ég klúðra málunum alveg hrottalega því mig langaði mest að hlaupa niður að gríni og staðfesta þetta afrek frekar en að vera eitthvað vesenast sjálfur. En löng saga stutt þá var boltinn í holunni og út sprungu mikil fagnaðarlæti með tilheyrandi öskrum og stemningu. Þannig bölvaður Ási vann geimið á einhverri gamalli reglu sem maður hélt að væri bara þjóðsaga. Geggjað móment og fullkominn dagur. Það má svo bæta við að þegar við fórum inn í skála og Ási spyr í afgreiðslunni hvort einhver hafi farið holu í höggi á þessari holu og fær hann svarið ” já er þetta ekki alltaf að gerast. Má bjóða ykkur eitthvað ?”
Hvað er draumahollið þitt?
Konan mín Inga Hrund og strákarnir okkar tveir Óliver og Tumi. Það er draumurinn sem við ætlum að láta rætast reglulega í framtíðinni. Og best væri að dóttirin sem hefur engan áhuga á golfi væri á pokanum. Held þetta sé uppskrift af fullkomnum degi.
Uppáhaldsvöllur?
Í útlöndum er Uppsala GK í Svíþjóð, sem ég hef spilað mjög oft. En ég hef spilað nokkra velli í Danmörku og Svíþjóð sem eru geggjaðir. Á Íslandi er vitanlega Hlíðavöllur í uppáhaldi en Brautarholt fylgir fast á eftir og Vestmannaeyjar alltaf skemmtilegur. En ég er eiginlega kominn á að allir vellir hafa sinn sjarma.
Hlíðavöllur eða Bakkakot?
Hliðarvöllur allan daginn, en ég skal viðurkenna að ég er spenntur fyrir breytingunum á Bakkakoti. Ég ætla að spila hann oft í sumar með litlu gaurunum mínum.
Besti kylfingurinn sem þú hefur spilað með?
Án alls gríns þá er það Bjarnþór Erlendsson (Baddi), en svo gaman að nefna það einnig að hann er sá lang versti. Hann vippar og púttar eins og atvinnumaður, en hann nánast getur ekki hitt grín af miðri braut frá 100 metrunum en ef hann er úti í móa upp við stein milli þúfna og þarf að keng slæsa´nn af 150 metra færi þá setur hann alltaf boltan í gimme range. Ótrúlegur leikmaður og frasakóngur.
Spilar þú golf í golfhermum yfir vetrarmánuðina?
Jú það kemur fyrir. Mjög gaman og gjörsamlega búið að breyta leiknum yfir veturinn.
Spilar þú alltaf golf með sömu vinunum eða ertu dugleg/ur að skrá þig í holl þar sem þú þekkir fáa? Ég er í hóp sem spilar saman á þriðjudögum, ég spila mest með mínum vinum þar og svo með konunni. Ég skrái mig minna með fólki sem ég þekki ekki en gerði það mikið á árum áður og þannig séð þekki ég bara ansi marga í klúbbnum þannig það er erfitt að hitta á einhvern sem ég þekki ekki.
Ertu dugleg/ur að taka þátt í starfinu í GM? Ef svo er, hvað finnst þér skemmtilegast?
Nei ekki nóg. Vill helst alltaf vera með í meistaramóti en það næst ekki alltaf. Vonandi næ ég að vera með í sumar.
Er eitthvað hjá okkur í GM sem þeir finnst mega betur fara?
Mér finnst starfið hafa verið flott þó svo undirritaður mætti taka meira þátt í félagsstarfi en það er sko í boði. Vellirnir okkar verða alltaf betri og betri, ég bara gæti ekki kvartað yfir neinu.
Og að lokum, hvernig fer um þig í GM?
Svo ótrúlega vel.
Svo biðjum við þig um að tilnefna næsta kylfing vikunnar 😊
Ég skora á KR-ing #1, Pál ”Vialli” Ásmundsson.
