GM félagi dagsins

GM félagi dagsins er Gunnlaugur Júlíusson

Forgjöf.
13,3
Hvenær varðstu félagi í GM?
2015
Afhverju byrjaðir þú að spila golf?
Ég fékk mikla hvatningu frá Davíð syni mínum, sem var í golfi frá barnsaldri. Hann var búinn að reyna að fá mig til að byrja mjög lengi.
Hvað er skemmtilegast við golfið?
Útivera og félagsskapurinn. Gaman að kynnast mörgu nýju fólki.
Hvernig hefur golfið gengið hjá þér?
Upp og niður. Byrjaði mjög vel og gekk fljótt að lækka forgjöfina. En nú eru aldur og stirðleiki farinn að segja til sín og forgjöfin farin að síga upp á við.
Hefurðu farið holu í höggi ?
Nei. Næst því 25 cm.
Eftirminnileg atvik eða sögur af golfvellinum?
Meistaramótið í þriðja flokki árið 2021. Endaði í síðasta holli á síðasta deginum, 11 höggum frá besta skorinu fyrir lokadaginn. Hvarflaði aldrei að mér að ég gæti unnið upp þann mun þannig að ég spáði lítið í skorið á hringnum. Fyrir síðasta púttið mitt á 18.holu segir meðspilarinn: Ef þú setur þetta í þá ertu búinn að vinna. Það fór nú svo að púttið fór í og ég endaði í fyrsta sætinu það árið. Kennir manni að þetta er ekki búið fyrr en síðasta höggið hefur verið talið. Mjög eftirminnileg stund.
Hvað er draumahollið þitt?
Davíð Gunnlaugsson, Björn Óskar Guðjónsson og Kristján Þór Einarsson
Uppáhaldsvöllur?
Þykir vænst um Hlíðavöll en Hvaleyrarvöllur finnst mér mjög flottur.
Hlíðavöllur eða Bakkakot?
Hliðavöllur en finnst Bakkakot líka mjög skemmtilegur.
Besti kylfingurinn sem þú hefur spilað með?
Kristján Þór Einarsson
Spilaru golf í golfhermum yfir vetrarmánuðina?
Já, gott að halda sveiflunni við í hermi og reyna að halda aftur af “gamla manna” sveiflunni.
Spilarðu alltaf golf með sömu vinunum eða ertu dugleg/ur að skrá þig í holl þar sem þú þekkir fáa?
Er duglegur að skrá mig með hverjum sem er ef veðrið er gott og ég á lausa stund.
Ertu dugleg/ur að taka þátt í starfinu í GM? Ef svo er, hvað finnst þér skemmtilegast?
Já. Skemmtilegast er að spila í meistaramóti og bændaglímunni, Titlest og Palla Open eru frábærir viðburðir sem ég reyni alltaf að taka þátt í.
Er eitthvað hjá okkur í GM sem þér finnst mega betur fara?
Nei mér finnst starfsmenn og klúbbmeðlimir til fyrirmyndar.
Og að lokum, hvernig fer um þig í GM?
Mjög vel og vil hvergi annars staðar vera. Get ekki beðið eftir að komast í 65 plús.
Svo biðjum við þig um að tilnefna næsta kylfing vikunnar 😊
Helgi Pálsson.
