Innanfélagsmótaraðir GM - Úrslit

Ágúst Jensson • 24. september 2026

Úrslit innanfélagsmótaraða GM

Það var líkt og ávallt góð þátttaka í innanfélagsmótaröðum Golfklúbbs Mosfellsbæjar og urðu úrslit þeirra eftirfarandi:


VITAgolf mótaröðin.


Sigurvegari í kvennaflokki varð Wenche Follaug og í karlaflokki var það Jónas Yamak sem sigraði. Keppnin í báðum flokkum var virkilega spennandi og munaði einungis þremur stigum á sigurvegurum flokkanna og þeirra sem urðu í öðru sæti.


Titleist holukeppnin.


Það var hann Þorsteinn Hallgrímsson sem stóðu uppi sem sigurvegari í karlaflokki og sigraði hann Eyþór Ágúst Kristjánsson í úrslitaleiknum.

Í kvennaflokki sigraði Elín Gróa Karlsdóttir eftir sigur í úrslitaleik gegn Jónu Sigríði Halldórsdóttir.


VIKING deildin.


VIKING deildin var hörkuspennandi líkt og ávallt og margir spennandi og skemmtilegir leikir.  Til úrslita léku liðin Par á næstu og Snúðarnir.  Þar spiluðu Par á næstu betur og tryggðu sér sigurinn í VIKING deildinni þetta árið með því að vinna úrslitaleikinn með 2,5 vinningum gegn 0,5.


Lið Par á næstu skipa eftirfarandi kylfingar:


Arnar Guðmundsson

Felix Sigurðsson

Andrea Jónsdóttir

Harpa Iðunn Sigmundsdóttir

Davíð Baldur Sigurðsson

Stuart Mitchinson

Alex Orri Davíðsson

Einar Már Hjartarson


Það voru svo lið Kórónu sem varð í þriðja sæti eftir sigur gegn Stutt í grínið. Þessi fjögur lið hafa því tryggt sig inn í VIKING deildina á næsta ári og þurfa ekki að fara í umspil.


Óskum við sigurvegurum mótaraðanna okkar innilega til hamingju með glæsilegan árangur. Verðlaunaafhending fer fram á aðalfundi GM í byrjun desember.


Takk kærlega allir sem tóku þátt í sumar :)