GM félagi dagsins

Ágúst Jensson • 28. janúar 2026

GM félagi sem og afmælisbarn dagsins er hann Palli Ásmunds

GM félagi dagsins er hann Páll Ásmundsson og er hann einnig afmælisbarn dagsins þar sem hann heldur upp á stórafmæli úti á Tenerife. Hann Palli er 70 ára í dag og óskum við honum innilega til hamingju með stórafmælið :)



Forgjöf.

17,3


Hvenær gerðist þú félagi í GM?

Minnir að það hafi verið 2002


Afhverju byrjaðir þú að spila golf?

Mjög margir vinir mínir í golfi og mig langaði að vera með.


Hvað er skemmtilegast við golfið?

Félagsskapurinn og útiveran.


Hvernig hefur golfið gengið hjá þér?

Það hefur bara gengið mjög vel, varð m.a. klúbbmeistari í þriðja flokki karla árið 2020


Hefurðu farið holu í höggi?

Nei ekki ennþá, en hef oft verið ansi nálægt því. Næsta sem ég hef komist er rétt um 5 cm frá holu.


Eftirminnileg atvik eða sögur af golfvellinum?

Meistaramót i 3. flokki 2020 þar sem ég var í 2. sæti fyrir lokadaginn fimm höggum á eftir efsta manni spilaði seinni níu holurnar á tveimur yfir pari og fannst ég bara ekki geta misst pútt, kom í hús sem sigurvegari 7 höggum á undan þeim sem leiddi fyrir lokadaginn. 12 högga sveifla ...mjög eftirminnilegt. 


Hvað er draumahollið þitt?

Kristján Þór Einarsson, Kristófer Karl Karlsson, Þorsteinn Hallgrímsson og svo undirritaður.


Uppáhaldsvöllur?

Hlíðavöllur, besti golfvöllur landsins enda Bjarni besti greenkeeperinn.


Hlíðavöllur eða Bakkakot?

Hlíðavöllur en Kotið er að verða flott með nýjum brautum, holum 1. og 2.


Besti kylfingurinn sem þú hefur spilað með?

Þorsteinn Hallgrímsson


Spilar þú golf í golfhermum yfir vetrarmánuðina?

Spila tvisvar í mánuði, geggjað að hafa hermana yfir veturinn og gaman að hitta vinina og spila golf.


Spilar þú alltaf golf með sömu vinunum eða ertu dugleg/ur að skrá þig í holl þar sem þú þekkir fáa? 

Bæði í föstum hópum og svo er bara gaman að henda ser í holl með ókunnugum og kynnast nýju fólki. 


Ertu dugleg/ur að taka þátt í starfinu í GM? Ef svo er, hvað finnst þér skemmtilegast?

Elska meistaramótið, missi ekki úr móti þar.


Er eitthvað hjá okkur í GM sem þeir finnst mega betur fara?

Nei, geggjaður klúbbur og frábært starfsfólk.


Og að lokum, hvernig fer um þig í GM?

Gæti ekki verið lukkulegri með klúbbinn minn.


Þetta er mín svör og ég tilnefni hann Gunnlaug Júlíusson sem næsta kylfing.