Nick með sinn besta árangur á Áskorendamótaröðinni

Dagur Ebenezersson • 2. júní 2025

Nick með sinn besta árangur á Áskorendamótaröðinni

Nick Carlson keppti núna um helgina á Challenge de Cadiz á Áskorendamótaröðinni. Keppt var á Novo Sancti Petri golfvellinum og endaði Nick jafn í 5. sæti á -10 (72-69-69-68). Jöfn og góð spilamennska í mótinu skilaði góðum árangri en hann fékk einungis 1 skolla samtals síðustu 3 hringina þrátt fyrir erfiðar aðstæður en mikið rok setti strik í reikningin fyrir kylfinga.


Fyrir mótið fékk Nick 13.500 evrur og kemur sér upp í 37. sæti á stigalistanum.


Hér má sjá lokastöðuna í mótinu