Ný æfingapúttflöt á Hlíðavelli

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 24. janúar 2022

Nú í morgun mættu Elli og félagar í Steingarði til okkar og hófu framkvæmdir við nýja púttflöt sem verður staðsett rétt fyrir fram Klett. Púttflötin verður rétt um 650 fermetrar af stærð og á vonandi eftir að nýtast okkar félögum vel við æfingar á komandi árum. Stefnum við að því að opna inn á þessa flöt í júlí í sumar.

Þessi nýja púttflöt mun gjörbreyta okkar æfingaaðstöðu þar sem aðstaða til púttæfinga utandyra er af skornum skammti. Þegar hún verður tekin í notkun munu báðar flatirnar sem eru staðsettar við æfingasvæði verða notaðar sem vippflatir.