Pamela Ósk í öðru sæti í Íslandsmótinu í holukeppni

Dagur Ebenezersson • 24. júní 2025

Pamela Ósk í öðru sæti í Íslandsmótinu í holukeppni

Íslandsmótið í holukeppni 2025 í holukeppni fór fram dagana 20.-23. júní á Hlíðavelli.


Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Golfklúbbi Selfoss, er Íslandsmeistari í holukeppni kvenna 2025 en hún sigraði Pamelu Ósk Hjaltadóttur í úrslitaleiknum.


Alls komust sex GM-ingar upp úr höggleiknum þar sem einungis 16 komast í holukeppnina í hvorum flokki. Pamela Ósk var best kvenna á pari samtals (73-69). Eva Kristinsdóttir var jöfn í 3. sæti á +8 (73-77), Auður Bergrún var í 7. sæti á +11 (72-81) og Sara Kristinsdóttir jöfn í 8. sæti á +12 (81-73). Berglind Erla var síðust inn af konunum í 15. sæti á +14 (79-77) en Kristján Þór Einarsson var eini sem komst inn af körlunum á +1 (71-72).


Leið Heiðrúnar að titlinum hófst í 36 holu höggleiknum á föstudaginn síðasta. Þar lék hún á 73 og 75 höggum, og varð önnur á deginum, sex höggum á eftir Pamelu.


í 16 manna úrslitunum mætti hún Berglindi Erlu, sem sigraði Vormót GM á sama velli í maí. Heiðrún lék fimm undir pari, var skollalaus og sigraði leikinn 5/3. Auður Bergrún á móti Fjólu og sigraði 1/0. Eva Kristinsdóttir vann Evu Fanney 2/1. Pamela vann Emblu hrönn 5/4. Kristján Þór lagði Daníel Ísak 2/1.


Í átta manna úrslitunum lék Heiðrún gegn Auði Bergrúnu. Lítið skildi þær að allan tímann, og var Auður yfir meirihluta hringsins. Góður endasprettur Heiðrúnar skildi þær að, og hún sigldi að lokum 1/0 sigri. Kristján Þór tapaði á móti Aroni Snæ 3/1. Eva Kristins tapaði á móti Andreu Ýr 4/2.


Lítið skildi Heiðrúnu og Pamelu að í úrslitaleiknum. Skolli Pamelu á fyrstu kostaði hana holu, en flottur fugl á fjórðu jafnaði leikinn. Heiðrún fékk skolla á fimmtu holu, báðar fengu þær fugl á sjöttu, og Heiðrún jafnaði leikinn með frábæru pútti á sjöundu holu. Þær voru jafnar eftir níu holur, báðar á einum undir pari vallarins. Leikurinn hélst jafn fram á 15. holu, og komst Heiðrún þá eina holu upp. Eftir það fékk Heiðrún tvo frábæra fugla í röð, sigraði holur 16 og 17, og tryggði sér titilinn.


Úrslitin úr höggleiknum:
Karla
Kvenna

Úrslitin úr holukeppninni:
Karla
Kvenna