Þrír kylfingar GM Íslandsmeistarar unglinga

Íslandsmótinu í höggleik unglinga lauk í gær og léku kylfingar undir 14 ára á Korpúlfsstöðum en 15-21 árs léku í Vestmannaeyjum. Fulltrúar GM léku vel en má segja að stelpurnar okkar hafi brillerað þar sem GM náði 3 Íslandsmeistaratitlum af 4 mögulegum.
Í flokki 17-21 árs var það Sara Kristinsdóttir sem sigraði en hún lék hringina 3 á +5 (72-67-76) og sigraði með 8 högga mun. Í öðru sæti á +13 var Berglind Erla Baldursdóttir, einnig úr GM, á +13 (80-70-73).
Í flokki 15-16 ára sigraði Pamela Ósk Hjaltadóttir en hún lék á 3 höggum yfir pari (73-70-70) og sigraði með miklum yfirburðum eða 14 höggum. Auður Bergrún Snorradóttir úr GM tók annað sætið en hún endaði á +17 (80-75-72).
Þriðji Íslandsmeistaratitill GM kom í flokki 12 ára og yngri stúlkna en það var hún efnilega Eiríka Malaika Stefánsdóttir sem lék hringina 3 á +20 (41-45-42) og sigraði örugglega með 13 högga mun.
Í flokki 13-14 ára pilta lék Hjalti Kristján Hjaltason frábært golf en hann endaði mótið á 5 höggum undir pari (70-71-70) í öðru sæti á eftir Arnari Daða Svavarssyni úr GKG sem lék á 11 höggum undir pari (70-67-68).
Við óskum þessum kylfingum innilega til hamingju með frábæran árangur!