Sara María og Eiríka eru Íslandsmeistarar unglinga í holukeppni

Dagur Ebenezersson • 26. júlí 2026

Sara María og Eiríka eru Íslandsmeistarar unglinga í holukeppni

Íslandsmótið í holukeppni í unglingaflokkum fór fram á Selfossi 23.-25. júlí og leiknar voru 14 holu umferðir. Í flokkum 14 ára og yngri var leikinn höggleikur í fyrstu umferð til að raða í holukeppnina en í flokkum 15 ára eldri var raðað í holukeppni eftir stigalista og því allar umferðir holukeppni.


Golfklúbbur Mosfellsbæjar átti marga flotta fulltrúa en Sara María Guðmundsdóttir og Eiríka Malaika Stefánsdóttir sigruðu sína flokka og eru því Íslandsmeistarar í holukeppni 2026.

Sara María mætti Maríu Högnadóttur og sigraði leikinn 2/0 og er því Íslandsmeistari í flokki 15-16 ára stúlkna.

Úrslitaleikinn lék Eiríka við Emblu Dröfn Hákonardóttur og vann örugglega 4/3 og er Íslandsmeistari í flokki 13-14 ára stúlkna.

Kristján Karl Guðjónsson lék til úrslita í flokki 17-18 ára pilta en tapaði naumlega 1/0 á móti Gunnari Þór úr GKG.