Sjö kylfingar GM valdir í landsliðsverkefni

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 25. júní 2023

Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri Golfsambands Íslands, hefur tilkynnt hvaða leikmenn skipa landslið Íslands í karla-, kvenna-, pilta- og stúlknaflokki á Evrópumótunum í liðakeppni 2023. Af völdum leikmönnum eru sjö kylfingar úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar.

Kristján Þór Einarsson og Kristófer Karl Karlsson eru hluti af 6 manna liði Íslands en þeir leika á EM Karla á Green Resort Hrubá Borša vellinum í Slóvakíu 12.-15. júlí.

Berglind Erla Baldursdóttir og systurnar Eva Kristinsdóttir og Sara Kristinsdóttir eru hluti af 6 manna liði Íslands sem leika á EM stúlkna á Golf Club d’Hossegor í Frakklandi dagana 11.-15. júlí.

Auður Bergrún Snorradóttir og Pamela Ósk Hjaltadóttir keppa fyrir hönd Íslands á European Young Masters á Sedin Golf Club í Slóvakíu dagana 27.-29. júlí.

Við óskum þessum afrekskylfingum innilega til hamingju og góðu gengi í þessum verkefnum.


Kristófer Karl Karlsson og Kristján Þór Einarsson


Sara Kristinsdóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir, Berglind Erla Baldursdóttir og Auður Bergrún Snorradóttir.


Eva Kristinsdóttir