Staðan og rástímar hjá 65 ára og eldri
Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 3. júlí 2023

Nú eru tveir hringir af þremur búnir hjá kylfingum í 65+ flokkunum okkar. Í dag var leikið í Bakkakoti og þar var líkt og í gær rjómablíða.
Hér að neðan má sjá stöðuna eftir tvo hringi sem og rástíma morgundagsins.
Allir keppendur hafa einnig fengið rástímann sinn sendan í tölvupósti.
Hér að neðan má sjá stöðu efstu kylfinga í höggleik með forgjöf.
Gunnar Rafn Jónsson - 142 högg
Haraldur Leiffson - 144 högg
Jóhann B Hjörleifsson - 148 högg.
Hildur Skarphéðins - 140 högg
Sigurlaug Sigurðardóttir - 150 högg
Guðrún Jónsdóttir - 152 högg.
Gangi ykkur vel á morgun.