Stuart Mitchinson yfirvallastjóri GM lætur af störfum
Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 16. ágúst 2022
Golfklúbbur Mosfellsbæjar hefur sagt um samning sínum við Stuart Mitchinson sem hefur verið yfirvallastjóri okkar valla síðastliðin þrjú ár og hefur hann látið af störfum.
Við viljum þakka Stuart fyrir vel unnin störf undanfarin ár og óskum honum velfarnaðar í því sem hann tekur sér næst fyrir hendur.
Nýr yfirvallastjóri GM verður kynntur í næstu viku.