Sveit GM Íslandsmeistarar golfklúbba U21 stúlkna

Golfklúbbur Mosfellsbæjar fagnaði sigri á Íslandsmóti golfklúbba í flokki 21 árs og yngri í stúlknaflokki. Keppnin var mjög spennandi þar sem að GM sigraði með minnsta mun en Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar varð í öðru sæti og Golfklúbbur Reykjavíkur í því þriðja.
Íslandsmót golfklúbba fór fram í síðustu viku í 3 flokkum á 3 mismunandi völlum: U21 léku á Selfossi, U16 léku á Hellu og U14 léku á Flúðum. Alls voru 7 keppnissveitir GM í þessum flokkum og stóðu keppendur sig vel af og utan vallar.
U21 stúlkur enduðu í 1. sæti.
U21 drengir enduðu í 6. sæti.
U16 stúlkur enduðu í 3. sæti.
U16 drengir enduðu í 5. sæti.
U14 stúlkur enduðu í 3. sæti.
U14 drengir voru með 2 sveitir og sveit 1 endaði í 4. sæti en sveit 2 í 13. sæti.
Sveit GM í stúlknaflokki U21: Berglind Erla Baldursdóttir, Katrín Sól Davíðsdóttir, Kristín Sól Guðmundsdóttir, Sara Kristinsdóttir, Ásdís Eva Bjarnadóttir og Heiða Rakel Rafnsdóttir.
Sveit GM í stúlknaflokki U14: Kristín Erla Pétursdóttir, Andrea Líf Líndal, Eiríka Malaika Stefánsdóttir og Sara María Guðmundsdóttir.
Sveit GM í stúlknaflokki U16: Gabríella Neema Stefánsdóttir, Auður Bergrún Snorradóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir, Birna Rut Snorradóttir, Eva Kristinsdóttir og Elísa Rún Róbertsdóttir.