TILKYNNING TIL FÉLAGSMANNA VEGNA COVID-19

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 11. apríl 2020

Ágætu félagar í Golfklúbbi Mosfellsbæjar.

Í dag barst öllum golfklúbbum landsins bréf frá Heilbrigðisráðuneytinu þar sem það var endanlega staðfest að golfiðkun stenst allar þær kröfur sem gerðar eru vegna Covid-19 veirunnar. Vetravöllur Hlíðavallar hefur verið opinn undanfarna daga og hafa okkar kylfingar geta notið þess að fara í golf í veðurblíðunni og verður það því þannig áfram.

Þessar reglur sem nú hafa verið settar fram munu ekki hafa mikil áhrif á spil á Hlíðavelli þar sem við erum nú þegar búin að grípa til þessara aðgerða og miða okkar golf að þeim flestum.

Það eina sem breytist er að við höfum nú opnað fyrir rástímaskráningu á golfboxinu og eru okkar félagar því vinsamlegast beðnir um að bóka sér rástíma frá og með sunnudeginum 12. apríl.

Golfskálinn okkar er lokaður að því leytinu til að það er engin þjónustu frá GM fyrir okkar kylfinga. Golfbúðin er ekki opin og þar sem völlurinn er bara opinn fyrir okkar félagsmenn þá er vallargjald ekki rukkað.

Veitingastaðurinn Blik Bistro verður að sjálfsögðu opinn áfram og þar er líkt og hefur verið hingað til öllum settum reglum fylgt.

Hlökkum til að sjá ykkur á golfvellinum.

Við minnum ykkur að ganga vel um völlinn og nota gervigrasmottur til að hlífa vellinum á þessum viðkvæma árstíma.

Kveðja,

Starfsfólk GM.

Hér má sjá reglur um ástundun golfíþróttarinnar á tímum samkomubanns frá GSÍ: