Tveir sigurvegarar GM í Midnight Challenge mótinu

Icelandic Junior Midnight Challenge mótið á Global Junior mótaröðinni fór fram á Hlíðavelli annað árið í röð. Leikið var mánudag, þriðjudag og miðvikudag í þremur aldursflokkum; U14, U18 og U23. Afrekskylfingar úr GM stóðu sig mjög vel og sigruðu Eva Kristinsdóttir og Pamela Ósk Hjaltadóttir í sínum aldursflokkum.
Verðlaunahafar GM:
U14 KVK:
1. Pamela Hjaltadóttir +13
U14 KK:
3. Hjalti Kristján Hjaltason +13
U18 KVK:
1. Eva Kristinsdóttir -5
2. Sara Kristinsdóttir +8
3. Berglind Erla Baldursdóttir +12
Einnig var heildarkeppni í karla og kvennaflokki þar sem besta skor yfir alla aldursflokka fær boð á mót í Portúgal á mótaröðinni með gistingu. Í kvennaflokki var það Eva Kristinsdóttir sem vann það á mögnuðu skori yfir hringina þrjá eða á 5 höggum undir pari (75-67-69). Í karlaflokki var það Veigar Heiðarsson úr GA á -7.
Við óskum þessum GM kylfingum innilega til hamingju með frábæran árangur!