Umhverfisvottun GEO endurnýjuð hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar

Ágúst Jensson • 9. febrúar 2026

Golfklúbbur Mosfellsbæjar endurnýjar GEO CertifiedTM- sjálfbærni og umhverfisvottun.

Það er okkur sönn ánægja að segja frá því að við höfum endurnýjað GEO umhverfisvottun golfklúbbsins. Erum með einn af fjórum golfklúbbum sem eru með þessa vottun í dag.


GEO, Golf Environment Organization. GEO eru umhverfissamtök sem starfrækir vottunarkerfi fyrir golfvelli. Samtökin njóta víðtæks stuðnings innan golfhreyfingarinnar á heimsvísu og vinna náið með aðilum utan golfheimsins líkt og UNEP, umhverfisáætlun Sameinuðu þjóðanna, og eru aðilar að ISEAL, alþjóðlegum samtökum umhverfismerkja.


Síðastliðin ár hefur Golfklúbbur Mosfellsbæjar stigið mörg framfaraskref í þágu umhverfisverndar og sjálfbærni, sem felur jafnframt í sér aukin gæði og hagræðingu í rekstri. Allt er þetta í anda hugmyndafræðinnar um sjálfbærni og sjálfbæra þróun, sem klúbburinn hefur einsett sér að starfa eftir í framtíðinni.


Hér má sjá hlekk inn á okkar heimasvæði hjá GEO.


Það er okkur mikilvægt að fá þessa vottun og fá staðfestingu á því að við séum ávallt að vinna í áttina aukinni sjálfbærni í viðhaldi og rekstri ásamt því að hugsa vel um náttúruna og okkar umhverfi.