Úrslit úr Íslandsmóti golfklúbba í flokki 50+

Úrslit úr Íslandsmóti golfklúbba í flokki 50+
Íslandsmót golfklúbba í flokki 50+ fór fram 20. - 22. ágúst og léku konurnar okkar í 1. deild á Hólmsvelli í Leiru og karlarnir okkar í 2. deild á Kirkjubólsvelli í Sandgerði.
Lið GM í kvennaflokki 50+ lék í A-riðli og þurftu þær að sætta sig við tap á móti Keili, GO og Nesklúbbnum sem þýddi að það væri verkefni fyrir höndum að falla ekki. Eftir frábæra baráttu hjá okkar sveit sigruðu þær næstu tvær umferðir á móti Golfklúbbnum Leyni og Vestmannaeyjum. Var því lokaniðurstaðan 6. sæti sem verður að teljast flottur árangur hjá okkar sveit og leika þær áfram í 1. deild að ári.

Karlasveit GM byrjaðu einnig erfiðlega en tap í öllum 3 leikjum í riðlakeppninni á móti Sandgerði, Vestmannaeyjum og Öndverðarnesi. Veikindi leikmanna og aðstandenda leikmanna okkar spiluðu inn í þetta árið og þurfti að kalla á varamann okkar og formann Kára Tryggvason til að stíga inn í tvær síðustu umferðirnar. Í fjórðu umferð vannst mikilvægur sigur á móti GO en svo tap á móti Selfossi í fimmtu umferð. Lokaniðurstaðan þetta árið er 7. sæti og leikum áfram í 2. deild að ári.

Ásbjörn Jónsson
Árni Friðriksson
Arnar Sigurbjörnsson
Pétur Valgarðsson
Jónas Heiðar Baldursson
Victor Rafn Victorsson
Guðlaugur Pálsson
Þorsteinn Hallgrímsson
Kári Tryggvason
Liðsstjóri: Guðleifur Kristinn Stefánsson
