Við opnum Bakkakotið á fimmtudaginn!

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 7. maí 2024

Ágætu GM félagar.

Við munum opna golfvöllinn í Bakkakoti næstkomandi fimmtudag, 9. maí.

Opnað verður fyrir rástímaskráningu kl. 10:00 í fyrramálið, miðvikudaginn 8. maí.

Völlurinn verður til að byrja með eingöngu opinn fyrir okkar félaga.

Hlökkum til að taka á móti ykkur fimmtudaginn :)