Viðhorfskönnun GM 2026

Viðhorfskönnun GM 2026

Líkt og undanfarin ár þá sendum við nýverið út viðhorfskönnunina okkar fyrir 2026.
Svörunin var góð, það voru rétt um 480 GM félagar sem tóku þátt og svöruðu. Það er stjórn og starfsfólki mikilvægt að fá sýn okkar félaga á starfið í golfklúbbnum.
Líkt og áður voru margar góðar og þarfar athugasemdir sem þarna komu fram. Það sem helst var nefnt var yfirbyggt æfingasvæði, aukið/bætt eftirlit á okkar golfvöllum, fleiri ruslatunnur ásamt ýmsu öðru sem stjórn og starfsfólk munu nýta sér í áframhaldandi vinnu við það að efla okkar góða golfklúbb.
Smellið hér til þess að sjá niðurstöður ársins.
Hér að neðan má sjá samanburðinn á niðurstöðum síðustu tveggja ára. Í þessum súluritum er þeir aðilar sem merkja við " veit ekki/hef ekki skoðun" teknir út.
Það gleður okkur að sjá að það er almenn ánægja hjá okkar félögum með starf klúbbsins og hefur það haldist þannig undanfarin ár. Hástökkvari ársins er Bakkakot og greinilegt að mikil ánægja er með þær framkvæmdir sem hafa átt sér stað þar.












