Vinavellir GM fyrir komandi sumar

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 15. mars 2021

Nú styttist óðum í vorið hjá okkur og vonandi kominn talsverður spenningur í alla golfara.

Nú hefur verið gengið frá vinavallasamningum við þrjá golfklúbba fyrir sumarið. Við höfum endurnýjað samninga við þrjá golfklúbba á norðurlandi sem voru einnig vinavellir hjá okkur í fyrra.

Það eru Golfklúbbur Akureyrar, Golfklúbbur Húsavíkur og Golfklúbburinn Hamar á Dalvík.

Vonum við svo sannarlega að þið eigið eftir að njóta þess að spila golf á þessum glæsilegu golfvöllum í sumar :)

Við munum svo auglýsa nýja vinavelli á komandi vikum.