Meistaramót GM - Skráning í fullum gangi

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 18. júní 2020

Ágætu GM félagar.

Skráning í meistaramótið okkar er núna í fullum gangi og gengur vel. Skráningin er opin til hádegis á föstudaginn 30. júní.

Skráning fer fram í golfboxinu. Í hlekknum hér að neðan eru allar upplýsingar um meistaramótið.

Laugardaginn 8. júlí verður haldið glæsilegt lokahóf. Við ætlum aðeins að breyta til og hafa standandi veislu með frábærum mat. Hér að neðan má sjá matseðilinn:

Oriental - risarækjur tempura - vorrúllur - Kjúklingaspjót soyja - Sweet chilli og hoisin sósa

Steikar - nautasteik með chilli-bernais - Kalkúnn chimmichurry - Smælki kartöflur - Mini pulled pork borgarar

Ítalía - ostabakki og skinkur - Bruchetta með tómötum og mozzarella

Desert - brownie með saltkaramelu og stökkum hrískúlum - Makkarónur - Karamelubollur fylltar með vanillukremi

Þegar þið gangið frá skráningu í mótið þá merkið þið einnig við hvort þið ætlið að koma í lokahófið. Kostar það 2.000 krónur aukalega.

Makar og aðrir gestir eru velkomin og kostar 6.000 kr per gest í mat og ball. Skráning maka/gesta fer fram í gegnum golfmos@golfmos.is

Hljómsveitin Króm mun svo leika fyrir dansi og halda upp geggjuðu stuði :)