Skráning opin í Meistaramót GM
Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 14. júní 2023

Ágætu GM félagar.
Búið er að opna fyrir skráningu í Meistaramót GM. Mótið fer fram dagana 2. - 8 júlí næstkomandi.
Mótið er ávallt hápunktur sumarsins hjá okkur og í fyrra var metfjöldi kylfinga sem tók þátt.
Skráning fer fram í golfboxinu. Skráning í meistaramót
Líkt og í fyrra munu 4. flokkur karla, 4. flokkur kvenna og 5. flokkur kvenna leika í Bakkakoti. Þau ykkar sem spilið í þeim flokkum, þið skráið ykkur í Meistaramót GM - Bakkakot.
Kylfingar 65 ára og eldri leika tvo hringi á Hlíðavelli og einn í Bakkakoti. Þau ykkar sem spilið í þeim flokkum, þið skráið ykkur í Meistaramót GM - Kylfingar 65+.
Allar upplýsingar um flokka, rástíma og ýmislegt fleira má finna í hlekknum hér að neðan.