VIKING deildin

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 5. júní 2023

Í gær fór fram undankeppnin fyrir VIKING deildina í sumar og það voru 19 lið sem spiluðu um 9 laus sæti fyrir komandi sumar.

Úr varð hörku keppni og ansi mjótt á munum þegar upp var staðið.

Eftirfarandi lið komust inn í keppnina í sumar:

Sæti Lið Heildarskor Hæsta einstaklingsskor
1 GK Mack 115
2 Golfnaglar 106
3 Sjúddírarírei 104
4 Orkuboltar 104
5 Stutt í grínið 103
6 Team Pixel 99
7 Very Næs 99
8 Ásarnir 97 36
9 RT 1 97 35

Það voru þrjú lið jöfn í 8 - 10. sæti og þá var það hæsta skor einstaklings innan hvers liðs sem réði úrslitum og því komust Ásarnir og RT1 inn á kosnað Kóróna.

10 Kóróna 97 33
11 Klemmur 96
12 Pottagengið 94
13 Kríur 93
14 Los Reyes 91
15 Bayleys Boys 89
16 Það er góð spurning 88
17 Dino 85
18 Kempurnar 83
19 Esjan 83

Nú er búið að setja allt mótið upp og eru allir leikir sem og dagsetningar (tímasetningar) komið inn á heimasíðuna okkar.

Vinsamlegast kynnið ykkur leikreglurnar vel svo að allt gangi smurt fyrir sig :)

Við minnum á mikilvægi þess að fyrirliðar tali sig saman fyrir hvern leik svo ekki komi upp neinn misskilningur með rástíma og þess háttar.

Við óskum þeim liðum sem komust áfram innilega til hamingju.

Gangi ykkur vel!