Golfklúbbur Mosfellsbæjar mun bjóða upp á golf og leikjanámskeið fyrir börn á aldrinum 6-12 ára í sumar. Námskeiðin eru byggð upp á skemmtilegum leikjum bæði á golfvellinum og í hans nánasta umhverfi. Golfið verður aldrei langt undan en einnig verður námskeiðið brotið upp með skemmtilegri dagskrá!
Námskeiðin henta vel fyrir alla krakka, hvort sem þau hafa prófað golf áður eða ekki. Ekki er nauðsynlegt að eiga búnað til golfiðkunar – allt slíkt er á svæðinu. Krakkar þurf að taka með sér nesti fyrir hádegismat. Mikilvægt að vera alltaf klædd eftir veðri.
Grétar Eiríksson íþróttafræðingur og PGA golfkennari hefur yfirumsjón með námskeiðunum en leiðbeinendur eru afrekskylfingar í GM með reynslu af kennslu á golfnámskeiðum.
Námskeiðin eru á eftirfarandi dagsetningum sumarið 2022
Júní
13. - 16. júní (4 dagar)
27. júní - 1. júlí (5 dagar)
Júlí
11. - 14. júlí (4 dagar)
25. - 29. júlí (5 dagar)
Ágúst
8. - 11. ágúst (4 dagar)
Námskeiðin eru kennd á milli klukkan 10:00 og 14:00 á daginn. Nemendur hafa tækifæri til þess að mæta klukkan 09:00 alla daga gegn auka gjaldi, 2.000 kr fyrir alla vikuna. Við skráningu er þá hakað við að óskað sé eftir þessari auka klukkustund.
Verð á námskeiðin er 19.900 kr (15.900 kr fyrir 4 daga námskeið og 23.900 kr fyrir 6 daga námskeið) og innifalið í námskeiðsgjaldi er:
Golfhringur í Bakkakoti með grillveislu að loknum hring
Pokamerki á golfsettið
Félagsaðild hjá GM sumarið 2020 með leikheimild á Steinarsvelli
Æfingaboltar á æfingasvæði GM við Hlíðavöll
Námskeiðin eru opin fyrir börn fædd á árunum 2010-2016.
Komdu og vertu með á skemmtilegasta námskeiði sumarsins!
Nánari upplýsingar um námskeiðin er hægt að fá í tölvupósti á netfangið gretar@golfmos.is
Skráning á námskeiðin er í gegnum Sportabler á slóðinni https://www.sportabler.com/shop/golfmos en skráning hefst 1. maí