Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Íþróttamiðstöð


Opnunartími íþróttamiðstöðvar - Golfherma

9:00 - 22:30 Mánudag til fimmtudags.

09:00 - 22:00 Föstudag til sunnudags.

Mánudag til fimmtudags eru golfhermarnir í salnum lokaðir (Lágafell, Mosfell og Úlfarsfell) vegna æfinga frá kl. 15:00 - 19:30

Föstudag eru golfhermarnir í salnum lokaðir (Lágafell, Mosfell og Úlfarsfell) vegna æfinga frá kl. 15:00 - 18:30

Þriðjudaga golfhermarnir í salnum lokaðir (Lágafell, Mosfell og Úlfarsfell) vegna æfinga frá kl. 11:00 - 13:00

Fimmtudaga eru golfhermarnir í salnum lokaðir (Lágafell, Mosfell og Úlfarsfell) vegna æfinga frá kl. 11:00 - 14:00




Íþróttamiðstöðin Klettur - frábær félagsaðstaða

Íþróttamiðstöðin Klettar var tekin í notkun vorið 2017 sem hýsir skrifstofur klúbbsins ásamt félags og æfingaaðstöðu.

Af hverju er þetta kallað íþróttamiðstöð?

Golfvöllur er í raun eitt stærsta íþróttamannvirki í hverju sveitarfélagi ef litið er til flatarmáls. Á hverju ári er áætlað að leiknir séu um 30.000 golfhringir á Hlíðavelli að sumri til og yfir vetrartímann eru þeir áætlaðir á bilinu 2.000—3.000 talsins. Eins og önnur íþróttahús getur golfvöllur mjög illa gegnt hlutverki sínu nema að við hann sé nauðsynleg aðstaða. Í grunninn má segja að ný íþróttamiðstöð gegni hlutverki anddyris að því íþróttamannvirki sem golfvöllur sannarlega er. Í Kletti má finna alla skrifstofuaðstöðu fyrir starfsmenn GM. Þar er að finna rúmgóðan hátíðarsal til að taka á móti stærstu golfmótum hvers sumars ásamt allri nauðsynlegri aðstöðu vegna veitinga og móttöku hópa.
Á neðri hæð hússins fullkomna aðstöðu til æfinga golfs innandyra. Þar eru m.a:
  • 2 fullkomnir golfhermar
  • Ríflega 200 m2 innipúttflöt
  • Aðstaða til að slá í net innanhúss
  • Aðstaða fyrir golf-líkamsrækt
  • Fyrirlestrarsalur fyrir iðkendur og þjálfara
  • Aðstaða fyrir þjálfara og leiðbeinendur

Aðstaða er nú fyrir börn og ungmenni í Mosfellsbæ að æfa sína íþrótt alfarið í heimabyggð við bestu mögulegu aðstæður.

Leitast er við að bjóða öðrum hópum aðstöðu í húsinu til almennrar útivistar og hreyfingar. Svæðið er tengt inn á stígakerfi Mosfellsbæjar og munu þar skapast mörg skemmtileg tækifæri fyrir tengingar við fleiri íþróttir og útvist í hjarta Mosfellsbæjar.


Lóðin, húsið og ferlið

Við hönnun hússins var leitast við að búa til framtíðarhúsnæði sem nýtast mun félagsmönnum um ókomna tíð. Húsið er tvílyft og verður öll hefðbundin aðstaða á efri hæðinni en á neðri hæð hússins verður aðstaða til æfinga og iðkunar golfs allt árið um kring.

Við hönnun hefur verið leitast við að skapa skemmtilega umgjörð fyrir félagsmenn og gesti klúbbsins og þá kannski sérstaklega í kringum mótahald enda Hlíðavöllur að komast í hóp fremstu golfvalla á Íslandi og erum við spennt að bjóða stærstu golfmót landsins velkomin í Mosfellsbæ.

Húsið er afar glæsilegt og situr beint yfir 10. og 18. braut Hlíðarvallar. Við blasir óviðjafnalegt útsýni yfir völlinn, Leirvoginn, Faxaflóann og auðvitað Esjuna. Á fallegum sumardegi má svo sjá Snæfellsjökul bera við sjóndeildarhringinn.

Golf allt árið um kring

Í Kletti er hægt að stunda æfingar og golfleik allt árið um kring. Á neðri hæð hússins má finna stóra inni púttflöt, net til að slá högg innanhúss, aðstöðu fyrir sérhæfða líkamsrækt fyrir kylfinga ásamt búningaaðstöðu. Þar er einnig að finna 2 sérhæfð rými fyrir fullkomna golfherma þar sem hægt er æfa og leika golf allt árið um kring.
Á efri hæðinni er öll aðstaða fyrir félagsmenn og gesti klúbbsins, hvort sem er við almennan golfleik eða við mótahald. Þar eru skrifstofur ásamt veitingastaðnum BLIK Bistro & Grill. Golfverslun og rástímaafgreiðsla er einnig á efri hæð hússins.