Mosfellsbær, Ísland

VITAgolf mótaröðin

VITAgolf mótaröðin 2023 fer af stað mánudaginn 5. júní.

Allir félagar í GM hafa þátttökurétt og er fyrirkomulagið þannig að hægt er að spila í mótaröðinni alla mánudaga og þriðjudaga í sumar til loka septembers, ( að tveimur vikum undanskildum 26. og 27. júní og 3 og 4. júlí ). Leikið er á Hlíðavelli. Kylfingar tilkynna sig til leiks í golfbúðinni hjá okkur og greiða þáttökugjald sem er aðeins 1.000 krónur per hring. Það eru svo sex bestu hringir sumarsins sem telja hjá viðkomandi kylfing. Það þarf því að spila að lágmarki 6 mánudaga/þriðjudaga til þess að vera gjaldgeng/ur í mótið.

Einungis er heimilt að skila inn skori annan daginn í viðkomandi viku, þ.e. annaðhvort mánudag eða þriðjudag. Eftir að kylfingur tilkynnir sig til leiks ber honum að ljúka leik og skila inn skori á þeim degi.

Keppt er í tveimur flokkum í punktakeppni, flokki karla og flokki kvenna og er hámarksforgjöf gefin 36 í báðum flokkum. Kylfingar ráða því af hvaða teigum þeir leika hverju sinni.

Verðlaunin í VITAgolf mótaröðinni eru stórglæsilegt, þeir kylfingar sem spila best í hvorum flokki fyrir sig fá sæti í golfferð GM sem farin verður 2024.

Staðan í VITAgolf mótaröðinni