Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Bændaglíma GM

02.10.2023
Bændaglíma GM

Bændaglíma GM fór fram síðastliðinn laugardag og þar var stuð og stemmning líkt og ávallt.

Það var pakkfullt í mótið og 104 kylfingar skráðir til leiks. Bændur voru þeir Kristján Þór Einarsson sem fór fyrir bláa liðinu og Stefán Þór Steindórsson fyrir því rauða.

Úr varð hörkukeppni sem endaði með sigri bláa liðsins með 29 vinningum gegn 23. Óskum við liðsmönnum bláa liðsins kærlega til hamingju með sigurinn.

Í lok móts var svo slegið upp veislu og alvöru hlaðborði að hætti Blik bistro.

Það var svo hún Heiða Guðnadóttir sem skoraði á sigurbóndann og því ljóst að hún og Kristján munu leiða sín lið á næsta ári.