Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Bændaglíman - ný liðsskipan og breyttur leiktími.

26.09.2023
Bændaglíman - ný liðsskipan og breyttur leiktími.

Bændaglíman okkar verður leikin næstkomandi laugardag. Hér að neðan má sjá hvernig liðin eru skipuð í dag. Það hafa orðið talsverðar breytingar frá upprunalegri dagsetningu.

Veðurspáin fyrir laugardaginn er þokkaleg og við ætlum að breyta byrjunartíma glímunnar til þess að ná besta veðrinu.

Það er mæting kl. 9:00 þar sem í boði verður léttur morgunverður fyrir keppendur og svo hefjast leikar kl. 10:00. Að leik loknum verður svo lambahlaðborð. Við ætlum að sjálfsögðu að vera með úrslitaleik Aftureldingar á skjánum hjá okkur.

Hlökkum til að sjá ykkur á laugardaginn :)