Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Bjarni Þór Hannesson ráðinn Yfirvallastjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar

05.10.2022
Bjarni Þór Hannesson ráðinn Yfirvallastjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar

Bjarni er með M.Sc. gráðu í Grasvallatæknifræði frá Cranfield University í Englandi, einn íslendinga til að hafa lokið svo hárri námsgráðu í faginu. Þar áður lauk hann þriggja ára námi í "Golf Course Management "frá Elmwood College í Skotlandi.

Bjarni ólst upp á Akranesi, þar sem hann hóf störf á golfvellinum árið 1995 og var gerður að vallastjóra sumrin 2002 og 2003 á milli þess sem hann stundaði nám í Skotlandi. Bjarni hefur starfað sem vallastjóri hjá Golfklúbbnum Ness, Golfklúbbnum Keili og í Grindavík. Áður vann hann á Sunningdale vellinum í Englandi, sem hefur yfir að ráða tveimur völlum (Old og New) sem eru alla jafna flokkaðir í hóp bestu golfvalla í heiminum. Einnig starfaði Bjarni á Nashawtuc C.C. í Concord Ma. í Bandaríkjunum, en sá völlur hélt árlega eitt mót á Champions Tour (öldunga túrinn).

Meðfram störfum sem vallastjóri hefur Bjarni einnig sinnt ráðgjafastörfum fyrir golf- og knattspyrnuvelli, rannsóknarstörfum í grasvallafræðum ásamt kennslu og fyrirlestrahaldi bæði fyrir landbúnaðarháskólann og fyrir samtök golfvallastarfsmanna hérlendis (SÍGÍ) sem og í Bretlandi (BIGGA).

Bjóðum við Bjarna hjartanlega velkominn í GM :)